

Sjálfstraust og sýnileiki í starfi
Á þessu námskeiði er lögð sérstök áhersla á sjálfstraust og sýnileika í starfi, auk þess sem fjallað er um hvernig einstaklingar geta haft áhrif á eigið starf og vinnuumhverfi þannig að það styðji betur við vellíðan þeirra.
Í fyrri hluta námskeiðsins skoða þátttakendur hvernig sjálfstraust, sjálfsöryggi og sjálfstrú birtast í daglegum verkefnum, samskiptum, ákvörðunum og tækifærum til áhrifa, en í þeim seinni er fjallað um starfsmótun; hvernig fólk getur haft áhrif á eigið starf með litlum, raunhæfum og meðvituðum breytingum.
Námskeiðið er blanda af fræðslu, sjálfskoðun, umræðum og hagnýtum æfingum. Að námskeiði loknu hafa þátttakendur skýrari mynd af eigin faglegu virði, aukinn skilning á því hvernig þeir geta orðið sýnilegri í starfi og 1–3 raunhæfar breytingar sem þeir geta unnið með til að móta starf sitt betur að eigin þörfum og lífi.
Frábært námskeið ætlað fólki sem vill efla sjálfstraust sitt í starfi, auka sýnileika sinn á vinnustaðnum og hafa meiri áhrif á eigið starf og starfsþróun.