

Lykillinn að Berlín
Langar þig að kynnast Berlín eins og heimamaður?
Á þessu námskeiði færðu bæði sögulegan bakgrunn og hagnýt ráð sem hjálpa þér að skipuleggja eigin Berlínarferð af öryggi og innsæi. Þú kynnist Berlín bæði sem sögulegri stórborg og lifandi áfangastað fyrir ferðalanga.
Á fyrra kvöldinu verður fjallað um þróun Berlínar frá smábæ til einnar áhrifamestu höfuðborgar Evrópu. Skoðað verður hvernig atburðir á borð við seinni heimsstyrjöldina, skiptingu Þýskalands og Berlínarmúrinn hafa mótað borgina og hvernig þessi saga birtist enn í hverfum hennar, menningu og daglegu borgarlífi.
Á seinna kvöldinu er áherslan á hagnýta þekkingu fyrir ferðalanga. Fjallað verður um mismunandi hverfi Berlínar, samgöngukerfið, helstu staði sem vert er að heimsækja og þær földu perlur sem oft fara fram hjá hefðbundnum ferðamönnum. Markmiðið er að þátttakendur fái lykilinn að Berlín og geti skipulagt eigin ferð með auknu sjálfstæði, öryggi og innsýn.
Námskeiðið hentar jafnt þeim sem eru að undirbúa sína fyrstu Berlínarferð og þeim sem vilja dýpka skilning sinn á sögu, menningu og mannlífi borgarinnar. Engrar fyrri þekkingar á Berlín er krafist.