

Vefstjórn – frá grunni til gervigreindar
Vefurinn er í þínum höndum. Fáðu hagnýta fræðslu og verkfæri sem þú getur nýtt strax.
Hagnýtt 6 klst námskeið í vefstjórn þar sem farið verður yfir allt frá grunnatriðum til mælinga, samfélagsmiðla og vefverslana – og í ár er líka nýr kafli um gervigreind í vefstjórn.
Á námskeiðinu er fjallað um umsjón með vefsvæðum, stórum sem smáum. Farið er yfir alla helstu þætti vefstjórnunar – frá grunnatriðum og verkfærum til mælinga, samfélagsmiðla og vefverslana. Sérstaklega er fjallað um hvernig gervigreind (AI) er að breyta vefstýringu og hvernig þátttakendur geta nýtt sér AI-verkfæri í daglegu starfi. Námskeiðið er hannað þannig að þátttakendur fari heim með bæði heildarmynd og hagnýtar hugmyndir sem þeir geta nýtt sér strax.
Námskeiðið hentar öllum sem sinna vefstjórn eða vefumsjón, hvort sem það er aðalhlutverk þeirra eða meðfram öðrum störfum. Engar forkröfur eru gerðar – námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa einhverja reynslu og vilja uppfæra þekkingu sína.