SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar
SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar
SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar

Núvitund og sjálfsumhyggja - vefnámskeið

Á þessu námskeiði verður farið yfir grundvallaratriði núvitundar og sjálfsumhyggju og hvernig þessi hugtök geta hjálpað okkur að lifa með auknu jafnvægi og vellíðan. Við munum kanna hvernig við getum þróað með okkur sjálfsumhyggju, þ.e. að sýna okkur sjálfum skilning og hlýju í erfiðum aðstæðum, og hvernig núvitund nýtist okkur á þeirri vegferð.. Sérstaklega verður fjallað um áhrif jákvæðs sjálfstals, mildrar sjálfsathygli og góðvildar gagnvart eigin tilfinningum, ásamt því hvernig við getum þróað með okkur þol og aðlögunarhæfni til að takast á við krefjandi aðstæður með opnum huga og aukinni innri ró.

Leiðbeinandi: Haukur Pálmason er tónlistarmaður, kennari og tölvunarfræðingur sem jafnframt hefur lokið diploma á meistarastigi í jákvæðri sálfræði við Endurmenntun HÍ.

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Hefst
27. feb. 2025
Tegund
Fjarnám
Tímalengd
1 skipti
Verð
17.900 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar