SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar
SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar
SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar

Menntastoðir

Nám í Menntastoðum samanstendur af almennum bóklegum greinum á 2. þrepi. Námið er ætlað þeim sem stefna á nám við undirbúningsdeildir háskóla, þeim sem vilja ljúka framhaldsskóla eða þeim sem vilja efla hæfni sína í bóklegum greinum. Einnig má meta nám í menntastoðum til eininga í bóklegum greinum iðnnáms. Hægt er að taka staka áfanga í Menntastoðum.

 

Fyrirkomulag náms: 

Námið er byggt þannig upp að tveir áfangar eru kenndir í einu í fimm vikur í senn. Hver áfangi hefst með fjarfundi á laugardegi og í kjölfarið fer námið fram á netinu í vendikennslu. Athugið að mikilvægt er að mæta á fyrsta fjarfund svo að námið gangi vel fyrir sig. Allir fyrirlestrar eru teknir upp fyrirfram og aðgengilegir námsmönnum í gegnum netið.

Námsmenn hafa aðgengi að kennara í vinnustofum á mánudögum eða miðvikudögum  milli kl. 17:00 - 20:00 í gegnum netið. Þar geta nemendur fengið aðstoð og leiðsögn við gerð verkefna frá kennara. Þar fyrir utan er nemendum frjálst að nýta sér aðstöðuna í SÍMEY og hafa þar aðgengi að ráðgjöfum og verkefnastjórum.

Námsmat:

Námsárangur er metinn með símati í formi verkefna, ekki eru haldin eiginleg lokapróf í áföngunum.  

 

Fög kennd á haustönn 2025 (birt með fyrirvara um breytingar):

  • Íslenska - Hefst 6. september kl 10. Aðgengi að kennara á miðvikudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 10. september til og með 8. október.
  • Upplýsingatækni - Hefst 13. september kl 10. Aðgengi að kennara á mánudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 15. september til og með 13. október.
  • Hagnýt stærðfræði - Hefst 11. október kl. 10. Aðgengi að kennara á miðvikudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 15. október til og með 12. nóvember.
  • Enska - Hefst 15. nóvember kl 10. Aðgengi að kennara á mánudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 17. nóvember til og með 15. desember.

 

Sjá nánar námskeiðslýsingar og hæfniviðmið í námsskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

 

Hafið samband við Helenu ([email protected]) eða Önnu Maríu ([email protected]) fyrir frekari upplýsingar um nám í Menntastoðum.

 

Námið hefst þann 1. febrúar 2025.

Hefst
6. sept. 2025
Tegund
Fjarnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar