

Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú
Nám í stuðningsfulltrúa- og leikskólaliðabrú er fyrir ófaglærða starfsmenn í leik- og grunnskólum.
Námið er samtals 66 einingar sem kenndar eru á fjórum önnum. Þátttakendum er boðið upp á raunfærnimat í upphafi náms, sem getur þá komið til styttingar á náminu.
Nemendur útskrifast sem leikskólaliðar og/eða stuðningsfulltrúar að námi loknu. Innihald námsins er félags-, sál- og uppeldisgreinar sem og sérgreinar á sviði kennslufræði.
Fyrirkomulag náms: Námið er byggt þannig að hver áfangi er kenndur í fjórar til fimm vikur í senn. Námið fram á netinu í vendikennslu. Athugið að mikilvægt er að mæta (á netinu) í fyrsta tíma hvers áfanga svo að námið gangi vel fyrir sig. Allir fyrirlestrar eru teknir upp fyrirfram og aðgengilegir námsmönnum í gegnum netið.
Námsmenn hafa aðgengi að kennara einu sinni í viku í hverjum áfanga á milli kl. 17:00 - 20:00 í gegnum netið. Þar geta nemendur fengið aðstoð og leiðsögn við gerð verkefna frá kennara. Þar fyrir utan er nemendum frjálst að nýta sér aðstöðuna í SÍMEY og hafa þar aðgengi að ráðgjöfum og verkefnastjórum.
Námsmat: Námsárangur er metinn með símati, þ.e. nemandi skilar inn verkefnum sem metin eru til einkunna og er einkunn gefin í tölustöfum. Hægt er að fá hluta áfanga metna í gegnum raunfærnimat og biðjum við þá sem þess óska að hafa samband við umsjónarmenn námsins, Helenu ([email protected]) eða Önnu Maríu ([email protected]).
-
Fög kennd á haustönn 2025 (birt með fyrirvara um breytingar):
- Hegðun og atferlismótun - Hefst 6. september kl 10. Aðgengi að kennara á miðvikudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 10. september til og með 8. október.
- Upplýsingatækni - Hefst 13. september kl 10. Aðgengi að kennara á mánudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 15. september til og með 13. október.
- Uppeldisfræði 2 - Hefst 18. október kl 10. Aðgengi að kennara á mánudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 20. október til og með 17. nóvember.
Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú samanstendur af eftirtöldum fögum:
Fatlanir 2A05
Hegðun og atferlismótun 2A05
Leikur sem náms- og þroskaleið 2A05
Íslenskar barnabókmenntir 2C05
Skapandi starf 1A05
Samskipti og samstarf 1A05
Þroskasálfræði 3A05
Gagnrýnin hugsun og siðfræði 2A05
Upplýsingatækni 1A05
Kynjafræði 2A05
Skyndihjálp 2A01
Uppeldisfræði 2A05 og 3A05
Þroski og hreyfing 2A05
Kennslustofan og nemandinn 2A05
Verð: 47.000,- hver önn (með fyrirvara um breytingu á verðskrá fræðslusjóðs).