SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar
SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar
SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar

Matarborgin Prag

Námskeið á Akureyri 3. apríl

Námskeið á Dalvík 11. apríl

Námskeið á Ólafsfirði 12. apríl

 

Hver hefur ekki gaman að því að prófa nýja rétti ?

Matreiðslumeistarinn Þórhildur M. Jónsdóttir fór og kynnti sér matarmenningu þessarar stórfenglegu borgar á haustdögum.
Tékkneskur matur er heiðarlegur og góður, þar sem hráefnið er sótt í náttúruna.

Á námskeiðinu verða gerðir þjóðlegir réttir eins og Kulajda sveppasúpa, gulas með brauð dumplings og plómu eftirréttur.

Leiðbeinandi: Þórhildur Jónsdóttir matreiðslumeistari

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Hefst
3. apríl 2025
Tegund
Staðnám
Verð
22.900 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar