

Íslenska 1 síðd./kvöld | Icelandic 1 -pm/evening
[Information in English below]
Á námskeiðinu stígur þú þín fyrstu og öruggu skref í að læra íslensku.
Þú færð góðan grunn í málinu og byggir upp sjálfstraust til að halda áfram að læra. Við leggjum áherslu á að byggja upp grunnorðaforða, skilning og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.
Um námskeiðið
Námskeiðið Íslenska 1 er sérsniðið fyrir þig sem ert byrjandi í íslensku. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja upp grunnorðaforða daglegs máls, bæði í skilningi og tali, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.
Íslenska 1 er byrjendanámskeið á stigi A1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Enska er notuð sem millimál í kennslunni.
Námsefnið Íslenska fyrir alla 1 er notað auk aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.
Áherslur
- Læra stafrófið, framburð og grunnorðaforða: Þú færð góðan grunn til að halda áfram að læra íslensku.
- Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir einfaldar og hagnýtar setningar.
- Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
- Málfræðin er kynnt á einfaldan hátt í tengslum við námsefnið.
- Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
------------
Icelandic 1 (A1.1)
In this course, you will take your first confident steps in learning Icelandic.
You will gain a solid foundation in the language and build the confidence to continue learning. We place emphasis on developing a basic vocabulary, comprehension and speaking skills that are useful in everyday life.
About the course
The Icelandic 1 course is tailored for you as a beginner in Icelandic. The course focuses on building a basic vocabulary for everyday language, in both comprehension and speech, using a variety of practical methods.
Icelandic 1 is a beginner's course at level A1.1 according to The European Language Framework. The course uses a variety of learning materials and active student participation to ensure effective and enjoyable Icelandic language learning. English is used as a lingua franca in the teaching.
The curriculum Icelandic for everyone 1 is used as an additional supplementary material and various electronic resources.
Emphasis
- Learn the alphabet, pronunciation and basic vocabulary: You will get a good foundation to continue learning Icelandic.
- We focus on speech therapy and you practise simple and practical sentences.
- All language skills are practised in the Icelandic course: listening, speaking, reading and writing.
- The grammar is presented in a simple way in the context of the subject matter.
- Your skills are assessed at the end of the course and you are given advice on the next steps in your Icelandic studies.