

Íslenska 1 í stuttu máli | Icelandic 1 in nutshell
[Information in English below]
Íslenska í stuttu máli er hagnýtt örnámskeið (6 klst.), sérstaklega sniðið fyrir þau sem vinna í ferða- eða veitingaþjónustu og vilja byrja að læra íslensku. Þú lærir einföld orð eins og kveðjur og tölurnar, en einnig algenga frasa og skemmtileg íslensk orð sem nýtast í samskiptum.
Þú færð innsýn í algengar venjur í íslensku samfélagi og upplýsingar um leiðir til að halda áfram að læra íslensku.
Um námskeiðið
Örnámskeið í íslensku á byrjendastigi. Lögð áhersla á að kynna algeng orð og þjálfa einfaldar setningar sem nýtast í samskiptum, bæði á vinnustöðum og í daglegu lífi. Það er sérstaklega sniðið að þörfum fólks sem starfar í veitinga- og ferðaþjónustu á Íslandi.
Einnig er veitt innsýn í nokkrar venjur og siði í íslensku samfélagi.
Í lok námskeiðsins fá nemendur upplýsingar um leiðir til að halda áfram að læra íslensku.
Byrjendanámskeið á stigi A1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Það er kennt tvisvar sinnum, þrjár klst. í senn, alls 6 klst.
Á námskeiðinu er notað fjölbreytt efni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku.
Áherslur
- Læra stafrófið og framburð
- Læra kveðjur, algeng orð og skemmtileg orð!
- Læra einfaldar setningar sem nýtast í samskiptum, jafnt við innlenda og erlenda ferðamenn og í daglegu lífi
- Innsýn í nokkrar venjur og siði í íslensku samfélagi.
- Fá upplýsingar um leiðir til að halda áfram að læra íslensku
-----
A practical short course (6 hours), specially tailored for those who work in travel- or catering service and want to start learning Icelandic. You learn simple words like greetings and the numbers, but also common phrases and fun Icelandic words that are useful in communication.
You will gain insight into common practices in Icelandic society and information on ways to continue learning Icelandic.
About the course
Focus on introducing common vocabulary and practising simple sentences for communication in both the workplace and daily life. It is specifically tailored to the needs of people working in the hospitality and tourism industry in Iceland.
An insight is also provided into some of the customs and traditions of Icelandic society.
At the end of the course, students will receive information on ways to continue learning Icelandic.
A1.1 level according to the Common European Framework of Reference for Languages. The course is taught online. It is taught twice, for three hours each session, for a total of six hours.
The course uses a variety of materials and active student participation to ensure effective and enjoyable learning of Icelandic.
Emphasis
- Learn the alphabet and pronunciation
- Learn greetings, common words and fun words!
- Learn simple sentences that are useful for communication, both with domestic and international tourists, and in everyday life.
- An insight into some customs and traditions in Icelandic society.
- Get information on ways to continue learning Icelandic.