

Fjárhagsleg heilsa – betri lífsgæði
Fjárhagsleg heilsa – leið að betri framtíð
Langar þig að ná betri tökum á fjármálunum, spara markvisst og byggja upp öryggi til framtíðar?
Um námskeiðið
Á þessu hagnýta námskeiði lærir þú einfaldar aðferðir til að bæta fjárhagslega heilsu, fá skýrari yfirsýn og taka betri ákvarðanir um peningana þína.
Á námskeiðinu færð þú svör við spurningum eins og:
- Hvernig heldur þú góðri yfirsýn yfir fjármálin?
- Hvernig byggir þú upp sparnað og varasjóð?
- Hvernig gerir þú einfalda og skilvirka fjármálaáætlun?
- Hvaða greiðsluleiðir, lán og tryggingar henta best?
- Hvernig nýtir þú lífeyrissparnað og önnur úrræði til framtíðar?
- Hvernig setur þú raunhæf fjárhagsleg markmið og lætur draumana rætast?
Kennari námskeiðsins er Þóra Valný Yngvadóttir, fjármálaráðgjafi með yfir 25 ára reynslu af fjármálaráðgjöf, fræðslu og markþjálfun.
Taktu skrefið að sterkari fjárhagslegri framtíð og auknum lífsgæðum.
Áherslur
Þú færð fræðslu og lærir einfaldar aðferðir sem hjálpa þér að taka betri ákvarðanir er varða:
- Sparnað
- Fjármálaáætlun
- Lán og tryggingar
- Lífeyrismál
- Fjárhagslega heilsu
- Íbúðakaup og rekstur heimilis
Fyrir hverja?
Þetta námskeið er fyrir öll sem vilja öðlast betri skilning á fjármálum sínum til að bæta fjárhagslega heilsu og ná markmiðum sínum.
Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.