Rafmennt
Rafmennt
Rafmennt

Grunnur í rigging

Á þessu grunnnámskeiði í rigging fá þátttakendur kennslu í meðferð sérhæfðs rigging búnaðar, öðlast færni og þekkingu svo sem á álags dreifingu þyngdar, notkun keðjutalía og keðjumótora, gerð áhættumats, vinnu í hæð, notkun fallvarna og fleira tengdum tímabundnum burðarvirkjum.

Þekkingarviðmið

  • Skilja tilgang og mikilvægi áhættumats á vinnusvæði og geta útskýrt meginreglur þess.
  • Þekkja helstu atriði í löggjöf ESB/Bretlands sem snúa að skipulagi, stjórnun, eftirliti og kröfum við tímabundin burðarvirki og vinnu í hæð.
  • Skilja hugtakið vinna í hæð, stigveldi varna, fallstuðla og kröfur um skoðun búnaðar.
  • Þekkja grundvallarhugtök í merkingu vinnusvæðis fyrir uppsetningu.
  • Skilja eiginleika og notkun mismunandi hífibúnaðar m.a. stroffur, augu, stálvíra og keðja.
  • Þekkja helstu hnútategundir og tengiaðferðir ásamt öryggisatriða tengdum þeim.
  • Skilja meginatriði útreikninga á tímabundnum burðarvirkjum, þ.m.t. áhrif horna, krafta, núnings, vefja og burðargetu.
  • Þekkja mismunandi endafestingar stálvíra (SWR) og kröfur um uppsetningu og skoðun þeirra.
  • Skilja samsetningu og burðargetu trussa, áhrif þríhyrninga, skástífa og tenginga.
  • Þekkja LOLER-kröfur og ábyrgð hæfs aðila við skipulagningu og framkvæmd tímabundinna burðarvirkja.
  • Skilja notkun mótora, fösun, keðjupoka og agaðs verklags til að koma í veg fyrir skemmdir.
  • Skilja meginreglur um aukahleðslur, dreifara (spreaders), annarskonar festinga og afleiðinga bilana.
  • Skilja hugtök um álagsdreifingu, varafestingar og krafta í hanafótum og keðjukerfum.
  • Skilja mikilvægi eftirlits, gátlista og öruggrar lyftingar/lækkunar eftir að uppsetningu er lokið.
Hefst
28. apríl 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
3 skipti
Verð
275.000 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar