Rafmennt
Rafmennt
Rafmennt

Unifi-WIFI

Námskeiðið miðar við að ná þekkingu á virkni og uppsetningu þráðlausra netkerfa, ásamt grunnþekkingu á netkerfum. Nýttur er búnaður frá UniFi við kennslu og byggist kennslan á því að ná góðum tökum á UniFi-kerfum, áhersla er lögð á grundvallaratriði netkerfa og uppsetningu þráðlausra netkerfa. Þú lærir hvernig á að setja upp og stjórna netkerfum með því að nota UniFi beina, skipta og aðgangspunkta. Aðaláherslan verður á þráðlaus netkerfi, þar sem farið verður yfir lykilatriði eins og að tryggja netkerfi, setja upp "Heita reiti" og búa til gestanet. Farið er í að skipuleggja uppsetningu íhluta kerfisins og kynnst helstu íhlutum.  Einnig verður farið yfir forritunarviðmót umsjónaraðila kerfisins. 

Skýjalausnir eru kynntar og hvernig umsjónaraðili getur stýrt og stjórnað kerfinu af netinu. Notast verður við myndrænt viðmót(GUI) sem UniFI býður uppá.

Einning mun vera farið í VLAN skilgreiningar og VLAN hönnun. Farið er yfir RF, BW, S/N og Guard Interval og önnur truflana gildi sem þarf að hafa í huga til að hámarka flutnings getu kerfa.

Kennsla er verkleg og munu þátttakendur hanna, setja upp kerfi ásamt kennslu á kerfisumsjón slíkra kerfa.

Hefst
13. maí 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
2 skipti
Verð
48.400 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar