

Netkerfi fyrir viðburði
Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa við hljóð-, ljós- og myndkerfi (AV) og vilja efla skilning sinn á IP-netum og þeim tæknilegum þáttum sem þeim tengjast. Fjallað verður um grunnatriði netkerfa og farið yfir helstu tæknilausnir sem notaðar eru í AV-umhverfi, þar á meðal Dante, stýringar, sACN og aðrar tengdar þjónustur. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist betri skilning á uppbyggingu og virkni IP-netkerfa, geti greint algeng vandamál og unnið markvisst að bilanagreiningu.
Kennslan byggir meðal annars á bókinni Show Networks and Control Systems, sem leiðir nemendur í gegnum helstu þætti netkerfa í hljóð- og ljósabransanum.
Fyrri hluti dagsins er tileinkaður fræðilegum grunni. Þar verður farið yfir grundvallaratriði IP-netkerfa, CAT-kapla, ljósleiðara, tengi og helstu staðla, auk þess sem fjallað verður um uppbyggingu LAN- og VLAN-neta.
Seinni hluti dagsins er verklegur. Þar vinna nemendur með raunhæf netkerfisvandamál sem sett verða upp sérstaklega fyrir námskeiðið. Nemendur þurfa að greina bilanir í kerfunum og leita lausna með skipulegri nálgun.
Í lok námskeiðsins eiga nemendur að hafa öðlast þjálfun í að takast á við algengustu vandamál sem koma upp í AV-netum og geta fylgt skýrum skrefum til að einangra og leysa slík vandamál.