Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Grunnnámskeið í kokteilagerð.

Námskeiðið er hugsað fyrir alla sem vilja læra grunn færni á barnum og töfrana við blöndun kokteila. 

Markmið námskeiðsins er að  þátttakendur öðlist grunnfærni í blöndun kokteila til að bera fram á barnum eða einfaldlega að geti slegið um sig í næstu veislu

Á námskeiðinu er farið yfir öll undirstöðuatriði í kokteilagerð. Farið verður yfir mismunandi aðferðir við framreiðslu á kokteilum, læra að nota baráhöld og fræðast um sígildar kokteila uppskriftir sem eru geysi vinsælar á börum og veitingahúsum í dag. Á námskeiðinu eru gerðir þrír kokteilar frá grunni og tekur það um 3 klst.

Kennari námskeiðsins er Teitur Riddermann Schiöth. Teitur hefur yfirgripsmikla reynslu sem spannar meira en áratug í bar geiranum og hefur hann unnið til fjölda verðlauna í greininni. Teitur er framreiðslumeistari að mennt og gegnir stöðu forseta Barþjónaklúbbs Íslands. Teitur er einn af kennurum í Kokteilaskólanum.  

Hefst
4. feb. 2025
Tegund
Staðnám
Tímalengd
1 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar