Veitur

Veitur

Lífsgæði til framtíðar
Veitur
Um vinnustaðinn
Veitur eru framsækið þjónustufyrirtæki sem tryggir aðgengi að rafmagni, hita, vatni og fráveitu. Með nýsköpun og samstarfi veitum við lífsgæði til framtíðar. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónustar ríflega 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti og erum stöðugt að bæta okkur og finna leiðir til þess að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur. Til að vita meira um hvernig er að starfa hjá Veitum er tilvalið að heimsækja heimasíðuna okkar, www.veitur.is/vinnustadurinn.

Aðildarfélag Festu fyrir samfélagsábyrgð

Í sinni ein­föld­ustu mynd felst sam­fé­lags­ábyrgð í því að fyr­ir­tæki, stofn­an­ir og hverskyns skipu­lags­heild­ir axli ábyrgð og hafi upp­byggi­leg áhrif á um­hverf­ið, stjórn­ar­hætti og sam­fé­lag­ið.

Heimsmarkmiðin

Fyrirtækið er þátttakandi í 17 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna gegn hlýnun Jarðar.

ISO 9001 - Gæðastjórnunarstaðall

ISO9001 er alþjóðlega viðurkenndur gæðastjórnunarstaðall.

Jafnlaunavottun

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.

Jafnlaunaúttekt PWC

Samkvæmt meginreglu jafnréttislaga ber launagreiðendum að greiða konum og körlum jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf. Jafnlaunaúttekt PwC greinir kynbundinn launamun innan fyrirtækja þegar tekið hefur verið tillit til annarra þátta sem hafa áhrif á laun, s.s. menntunar, starfsaldurs, starfaflokks og vinnustunda.

UN Global Compact

Með þátttöku í Global Compact geta fyrirtæki tekið þátt í því að þróa markaðshagkerfi sem stuðlar að velferð samfélags og umhverfis með því að samtvinna hin tíu grundvallarviðmið við heildarstefnu fyrirtækisins. Grunvallarviðmiðin eru á sviði mannréttinda, vinnumarkaðsmála umhverfismála og baráttu gegn hvers kyns spillingu.
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík

201-500

starfsmenn