Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Ánægja - Ábyrgð - Árangur
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar
Um vinnustaðinn
Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru tæplega 110 nemendur. Skólinn er hluti af Skólamiðstöð þar sem náin samvinna er við leikskóla, tónlistarskóla og bókasafn. Nóg er af lausu húsnæði á Fáskrúðsfirði og í sveitarfélaginu. Mikil áhersla er lögð á teymisvinnu á öllum sviðum skólastarfsins og sameiginlegri ábyrgð í starfi, ekki síst í stjórnendateymi, umsjónarkennarateymum og lausnarteymi skólans. Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er mikil áhersla lögð á velferð nemenda og starfsfólks og litið svo á að hún sé lykillinn að árangri í öllum verkefnum. Unnið er í anda leiðsagnarnáms og byrjendalæsis. Unnið er eftir metnaðarfullri áætlun gegn einelti og lögð er áhersla á ART kennslu. Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfsstjórn barna og unglinga. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Kjörorð skólans eru ,,ánægja, ábyrgð, árangur".
Hlíðargötu 56

11-50

starfsmenn