Um vinnustaðinn
Brimborg er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á bílamarkaði með umboð fyrir mörg af þekktustu bílamerkjum heims eins og Volvo, Ford, Polestar, Mazda og Peugeot ásamt Volvo vörubílum, Volvo vinnuvélum og Volvo Penta bátavélum. Brimborg er umsvifamikið í innflutningi, sölu og þjónustu á farar- og flutningatækjum til atvinnurekstrar eða einkanota og býður meðal annars hjólbarða frá Nokian og útleigu bíla. Fyrirtækið rekur í dag bílaumboð, bílasölu fyrir fólksbifreiðar, atvinnubíla- og atvinnutæki, bílaleigu og víðtæka varahluta- og verkstæðisþjónustu fyrir bíla og atvinnutæki.
Starfsstöðvar Brimborgar eru í dag átta talsins í Reykjavík, Hafnarfirði og á Akureyri. Þótt auður hvers fyrirtækis felist að miklu leyti í góðu skipulagi og rekstri er mannauðurinn ekki síður mikilvægur. Þar hefur Brimborg miklu láni að fagna og margir af ríflega 250 starfsmönnum fyrirtækisins hafa starfað hjá því í yfir 30 ár. Þetta er þrautþjálfað fólk með mikla reynslu og þekkingu og slík tryggð starfsmanna við fyrirtæki í harðri samkeppni er ómetanleg.
Brimborg býður upp á breitt úrval starfa, tímabundin sem og ótímabundin og tökum vel á móti nemum til okkar sem hyggjast stefna að fagmennsku í bifvélavirkjun og/eða vélvirkjun. Öll okkar verkstæði eru gæðavottuð frá Bílgreinasambandinu en Brimborg rekur alls níu verkstæði.
Jafnlaunavottun
Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2024
Moodup - Vinnustaður í fremstu röð 2024
Moodup - Vinnustaður í fremstu röð 2025
Bíldshöfði 6, 110 Reykjavík

201-500
starfsmenn
Skemmtun
Margvísleg skemmtun í boði sbr. mannauðsstefnu Brimborgar
Heilsa
Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
Vinnutími
Þú færð frí á afmælisdaginn þinn, enda stórmerkilegur dagur
Matur
Niðurgreiddur hádegismatur




