
Akraneskaupstaður
Sveitarfélagið Akraneskaupstaður

Um vinnustaðinn
Akranes er stærsta sveitarfélag Vesturlands með rúmlega 8.500 íbúa.
Hjá Akraneskaupstað starfa tæplega 800 manns í 20 stofnunum. Bærinn rekur tvo grunnskóla, fjóra leikskóla, frístundastörf, búsetukjarna, miðlæga skrifstofu, tónlistarskóla, bókasafn, slökkvilið og byggðasafn svo fátt eitt sé nefnt. Akranes er framsækið sveitarfélag sem hefur jákvæðni, metnað og víðsýni að leiðarljósi í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins.
Akranes er einstaklega fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem gott er að búa og ala upp börn. Bærinn er bæði heilsueflandi og barnvænt samfélag og framfylgir stefnu um slíkt. Það sem einkennir Akranes er flatlendi þess og er því mjög þægilegt að ganga og hjóla um bæinn. Auk þess eru möguleikar til útivistar fjölbreyttir og stutt í ósnortna náttúru.

Jafnlaunavottun
Dalbraut 4, 300 Akranesi

20
Stofnanir
Jákvæðni
Við temjum okkur jákvætt viðhorf og tökumst á við dagleg störf á uppbyggilegan hátt með bros á vör. Við vekjum athygli á því sem vel er gert, erum glaðleg í viðmóti og leggjum mikla áherslu á þjónustulund.
Metnaður
Við leitum stöðugt framfara og sýnum metnað og dugnað í öllum okkar verkefnum. Við höfum fagmennsku í fyrirrúmi, temjum okkur skapandi viðhorf og hvetjum til samvinnu.

Hreyfing
Heilsueflingarstyrkur í þrek og sund á Jaðarsbökkum.
Heilsa
Akraneskaupstaður er heilsueflandi samfélag.
Samgöngur
Mjög þægilegt er að ganga og hjóla um Akranes auk þess sem ókeypis er í strætó.
Skemmtun
Hjá Akraneskaupstað vinnur fólk með gleði og húmor í fyrirrúmi.
Víðsýni
Við skoðum málin í víðu samhengi, horfum fram á við og sýnum kjark og þor til að fara nýjar leiðir. Við köllum eftir samræðum um ólík málefni, höfum fordómalausa nálgun og berum virðingu fyrir mismunandi skoðunum.