Enterprise Rent-A-Car á Íslandi
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Vaktstjóri

Okkar bílaleiga ehf. er ört vaxandi fyrirtæki og leyfishafi bílaleigunnar Enterprise Mobility. Enterprise Mobility er stærsta bílaleiga í heiminum og rekur vörumerkin Enterprise, Alamo og National 

Við leitum að öflugum og jákvæðum vaktstjóra til liðs við okkur. Vaktstjóri gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri og hefur bein áhrif á upplifun viðskiptavina, árangur teymisins og gæði þjónustunnar.

Starfið er fjölbreytt, líflegt og krefjandi – enginn dagur er eins. Þú skipuleggur daglega starfsemi, stýrir vaktinni og styður starfsfólk með þjálfun, leiðsögn og eftirfylgni. Jafnframt tekur þú virkan þátt í daglegum verkefnum og tryggir að teymið vinni saman að framúrskarandi þjónustu.

Þetta er spennandi tækifæri fyrir einstakling sem hefur gaman af samskiptum, tekur frumkvæði og vill þróast í leiðtogahlutverki í hröðu og alþjóðlegu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Tryggir eftirfylgni sölu- og þjónustuþjálfunar í daglegu starfi gagnvart sölufulltrúum með framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina í huga

Tryggir að aðstaða viðskiptavina og starfsfólks sé ávallt snyrtileg

Þjálfun sölufulltrúa nýrra og starfandi starfsfólks í samráði við yfirmann

Vaktaskipan og mönnun fyrir starfsfólk í afgreiðslu og í bílaþvotti

Ber ábyrgð á að viðhalda þjónustustigi og hámarka nýtni unna tíma

Uppgjör skv. verklagsreglum

Ber ábyrgð á daglegri flotastýringu 

Samskipti við viðskiptavini og erfið mál tengd þeim

Menntunar- og hæfniskröfur

B- ökuréttindi
Góð enskukunnátta 

Реклама створена 9. October 2026
Кінцевий термін подання заявки15. November 2026
Мовні вимоги
АнглійськаАнглійська
вимагається
Рідна мова
ІсландськаІсландська
Optional
Високий
Розташування
Flugvöllum 31, 230 Reykjanesbæ
Тип роботи
Професії
Мітки роботи