Vatn & veitur
Vatn & veitur
Vatn & veitur

Söluráðgjafi Vatn og veitna, Selfossi

Söluráðgjafi óskast í Vatn & veitur, Selfossi

Óskum eftir að ráða söluráðgjafa Vatn og veitna í útibúi Fagkaupa á Selfossi. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf hjá ört vaxandi fyrirtæki með jákvæðu og samheldu starfsfólki.

Vatn og veitur er eitt fyrirtækja innan Fagkaupa. Fagkaup á og rekur einnig verslunar- og þjónustufyrirtækin Johan Rönning, Sindra, S. Guðjónsson, KH-vinnuföt, Fossberg, Hagblikk, Varma og vélaverk, Ísleif, Áltak, Ds Lausnir og K.Þorsteinsson og co.
Hjá Fagkaupum starfa um 300 starfsmenn í Reykjavík, Kópavogi, Fjarðabyggð, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Grundartanga, Selfossi og Akureyri.

Fagkaup skuldbindur sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Auk þess hefur Fagkaup hlotið vottun skv. ISO 9001 gæðastaðlinum.

Eitt af lykilmarkmiðunum er að fara fram úr væntingum viðskiptavina. Til að ná þeim markmiðum er hæft starfsfólk mikilvægur partur í daglegum störfum Fagkaupa.
Lögð er áhersla á góðan starfsanda og góðan aðbúnað starfsfólks. Starfsþróun og tækifæri til vaxtar þar sem fræðsla til starfsfólks er lykilþáttur í að auka þekkingu starfsfólks og efla í daglegum störfum.

Frekari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.vatnogveitur.is og einnig á www.fagkaup.is

Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til 20.nóvember.

Við hvetjum áhugasama að sækja um, óháð aldri, kyni og uppruna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti við viðskiptavini útibús
  • Gerð sölutilboða til pípulagnaverktaka
  • Móttaka viðskiptavina og ráðgjöf til þeirra
  • Almenn sölustörf 
  • Tiltekt og áfylling í verslun 
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölustörfum og/eða pípulagningum
  • Sveinspróf í pípulögnum er kostur
  • Þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Almenn tölvukunnátta
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur 
  • Samgöngustyrkur
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Öflugt félagslíf og virkt starfsmannafélag
  • Árlegt heilsufarsmat 
Реклама створена 31. October 2026
Кінцевий термін подання заявки20. November 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Austurvegur 69, 800 Selfoss
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.АмбіціїPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.СантехнікPathCreated with Sketch.ПродажPathCreated with Sketch.Ділові відносини
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи