Hekla
Hekla
Hekla

Gerðu bílaáhugann að starfi

Við leitum að þjónustulunduðum og lausnamiðuðum einstaklingi til að sinna sölu vara- og aukahluta. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf þar sem góð þjónusta og fagleg ráðgjöf eru í fyrirrúmi.

Við bjóðum upp á framúrskarandi vinnuaðstöðu í nýjum höfuðstöðvum okkar að Þorraholti í Garðabæ.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf, tilboðsgerð og sala vara- og aukahluta.
  • Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina í gegnum síma, tölvupóst og netspjall, meðal annars vegna vara- og aukahluta og verkstæðisþjónustu.
  • Söluráðgjöf til innri og ytri viðskiptavina í samræmi við þjónustu- og gæðastaðla framleiðenda.
  • Skráning og afgreiðsla sölu- og þjónustupantana í viðeigandi kerfum.
  • Eftirfylgni með fyrirspurnum og tilboðum með það að markmiði að tryggja framúrskarandi þjónustu.
  • Samvinna þvert á deildir og þátttaka í fjölbreyttum verkefnum eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð þekking á bifreiðum, búnaði þeirra og varahlutum
  • Rík þjónustulund og góðir samskiptahæfileikar
  • Lausnamiðuð hugsun og sjálfstæð vinnubrögð
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Hæfni til að leita upplýsinga í kerfum framleiðenda og nýta þær í ráðgjöf til viðskiptavina
  • Góð tölvukunnáttu og hæfni til að tileinka sér ný kerfi og tækni
Реклама створена 6. November 2026
Кінцевий термін подання заявки27. November 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Високий
Розташування
Þorraholt 2, Garðabæ
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Телефонний зв''язокPathCreated with Sketch.Спілкування електронною поштоюPathCreated with Sketch.ПродажPathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтів
Професії
Мітки роботи