Síminn
Síminn
Síminn

Þjónustufulltrúar hjá Símanum

Síminn leitar að drífandi einstaklingum í framtíðarstarf sem felur í sér þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina okkar. Þjónustufulltrúar Símans eru úrræðagóðir, veita framúrskarandi þjónustu og leitast við að koma til móts við þarfir og væntingar viðskiptavina. Við leitum að aðilum með framúrskarandi þjónustuhugsun og frábæra samskiptahæfni til að þjónusta nýja og núverandi viðskiptavini Símans, og leggja sig fram við að uppfylla þarfir og væntingar þeirra.

Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu þar sem unnið er á 8 klst. vöktum, þar sem áhersla er lögð á jafnvægi og vaktaplön eru mótuð í samráði við starfsfólk. Viðkomandi aðilar þurfa að geta hafið störf fljótlega.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Einstök samskiptahæfni og þjónustulund
  • Tækniáhugi
  • Sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hafa getu til að stuðla að góðum liðsanda
  • Áhugi til að læra nýja hluti
  • Stundvísi
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun er æskileg
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri
Fríðindi í starfi
  • Afslættir af vörum og þjónustu Símans
  • Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
  • Aðgengi að velferðarþjónstu Heilsuverndar
  • Árlegur líkamsræktarstyrkur
  • Námsstyrkir
  • Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
  • Gleraugnastyrkur
Реклама створена 27. October 2026
Кінцевий термін подання заявки10. November 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Технологічно підкованийPathCreated with Sketch.Швидко навчаюсьPathCreated with Sketch.Телефонний зв''язокPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.ПунктуальністьPathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтів
Професії
Мітки роботи