Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á yngsta - eða miðstigi – Lækjarskóli

Lækjarskóli auglýsir eftir kennara á yngsta eða miðstigi skólaárið 2026-2027.

Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins, þar af tæplega 140 á unglingastigi. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna umsjónarkennslu á miðstigi með fjölbreyttum kennsluháttum.
  • Vinna að þróun UDL og annarri skólaþróun í Lækjarskóla í samvinnu við skólasamfélagið.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við skólasamfélagið
  • Starfa samkvæmt SMT-skólafærni
  • Taka þátt í stefnumótun skólans.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Kennslureynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum á miðstigi æskileg
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt Sjálsmatsrammi
  • Víðtæk tölvukunnátta og góð þekking á G-suite og Mentor.
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband Dögg Gunnarsdóttur, skólastjóra, [email protected]

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.

Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2026.

Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Реклама створена 20. April 2026
Кінцевий термін подання заявки4. May 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Sólvangsvegur 4, 220 Hafnarfjörður
Тип роботи
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (21)