Árbæjarskóli
Árbæjarskóli

Kennari á yngstastigi í Árbæjarskóla frá hausti 2026

Við auglýsum eftir kennara á yngstastig. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill bætast við mjög gott kennarateymi í góðu og jákvæðu umhverfi.

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 750 talsins en skólinn er safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 108 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu í samráði við skólastjórnendur og árgangateymi.
  • Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Reynsla af kennslu barna og unglinga er æskileg.
  • Hæfni í samskiptum.
  • Faglegur metnaður.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
  • Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði.
Реклама створена 21. April 2026
Кінцевий термін подання заявки6. May 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
Розташування
Rofabær 34, 110 Reykjavík
Тип роботи
Професії
Мітки роботи