Salaskóli
Salaskóli
Salaskóli

Umsjónarkennarar á miðstig, kennari í tónmennt og kennari í sköpun og tækni

Salaskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. til 10. bekk, staðsettur á grónu svæði við Versali í Kópavogi. Skólinn var stofnaður árið 2001 og fagnar því 25 ára starfsafmæli á þessu ári. Í skólanum eru um 500 nemendur og þar starfar vel menntað og metnaðarfullt starfsfólk. Rík hefð er fyrir þróunarstarfi þar sem m.a. er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, teymiskennslu, jákvæðan skólabrag og gott samstarf við foreldra og nærsamfélagið. Í Salaskóla er rekin sérdeild fyrir börn með einhverfu, frístund fyrir nemendur í 1.-4. bekk og gott samstarf er við félagsmiðstöðina Fönix sem staðsett er í skólahúsnæðinu. Gildi Salaskóla eru vinátta, virðing og samstarf.

Í Salaskóla vinna kennarar saman í teymum við undirbúning og skipulagningu náms og kennslu og mikil áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín í námi og leik og að þeim líði vel í skólanum.

Umsjónarkennara vantar á miðstig fyrir skólaárið 2026-2027

Umsjónarkennarar á miðstigi starfa saman í 2-3 manna teymum auk samstarfs við stoðþjónustu og foreldra. Umsjónarkennarar á miðstigi kenna allar bóklegar greinar í sínum árgangi og áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti, samþættingu í námi og uppbyggilega nálgun gagnvart námi og líðan nemenda.

Tónmenntakennara vantar fyrir skólaárið 2026-2027

Um er að ræða tónmenntakennslu í 1.-7. bekk, valgreinar á unglingastigi og viðveru/þátttöku í viðburðum tengdum skólahaldinu, m.a. undirspil, stýring á þátttöku nemenda í söng og framkomu o.fl. Samstarf við umsjónarkennarateymi og teymi list- og verkgreinakennara um nám og kennslu og velferð nemenda. Kennsla fer að einhverju leyti fram í lotum/smiðjum með skipulagi sem nær yfir allt skólaárið.

Kennara vantar í sköpun og tækni (snillismiðju) fyrir skólaárið 2026-2027

Um er að ræða kennslu í sköpun og tækni á öllum aldursstigum þar sem hugmyndafræði hönnunarhugsunar stýrir ferli nemenda í sköpun, hönnun og útfærslu verkefna. Efnistök eru fjölbreytt og meðal annars notaðir þrívíddarprentarar, vínilskerar o.fl. Samstarf við umsjónarkennarateymi og teymi list- og verkgreinakennara um nám og kennslu og velferð nemenda. Kennsla fer að einhverju leyti fram í lotum/smiðjum með skipulagi sem nær yfir allt skólaárið.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • B.Ed, M.Ed eða önnur viðeigandi menntun sem og leyfisbréf til kennslu.
  • Vilji og hæfni til teymiskennslu og teymisvinnu. 
  • Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi gagnvart fjölbreyttum nemendahópi.
  • Áreiðanleiki og stundvísi.
  • Vera tilbúin/n að vinna eftir stefnu skólans.
  • Góð hæfni í íslensku, töluðu og rituðu máli.
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar sveitarfélagsins. 

Реклама створена 24. April 2026
Кінцевий термін подання заявки8. May 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Versalir 5, 201 Kópavogur
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.ПлануванняPathCreated with Sketch.ПунктуальністьPathCreated with Sketch.Терпіння
Підходить для
Професії
Мітки роботи