Sveitarfélagið Strandabyggð
Sveitarfélagið Strandabyggð
Sveitarfélagið Strandabyggð

Grunnskólakennari

Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir eftir grunnskólakennara. Grunnskólinn á Hólmavík er sameinaður tón-, leik- og grunnskóli með um 45 nemendur í grunnskóla og 20 nemendur í leikskóla. Áhersla er á samstarf milli leik- og grunnskóla, flæði starfsfólks og sameiginlega þátttöku í ýmsum verkefnum. Uppeldisstefnu jákvæðs aga er fylgt og áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, jákvæðan aga og þemabundin verkefni í lotum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast almenna kennslu og skipulag í samstarfi og samráði við aðra kennara og skólastjórnendur
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra, stjórnendur og fagfólk
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu og gildum skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu
  • Reynsla af grunnskólakennslu
  • Faglegur metnaður og áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð
Реклама створена 24. April 2026
Кінцевий термін подання заявки7. May 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Brunngata 2, 510 Hólmavík
Тип роботи
Професії
Мітки роботи