Sveitarfélagið Strandabyggð
Sveitarfélagið Strandabyggð
Sveitarfélagið Strandabyggð

Þroskaþjálfi

Þroskaþjálfi/iðjuþjálfi óskast til starfa með nemendum og stoðþjónustu í leik- og grunnskólanum á Hólmavík. Grunnskólinn á Hólmavík er sameinaður tón-, leik- og grunnskóli með um 45 nemendur í grunnskóla og 20 nemendur í leikskóla. Áhersla er á samstarf milli leik- og grunnskóla, flæði starfsfólks og sameiginlega þátttöku í ýmsum verkefnum. Uppeldisstefnu jákvæðs aga er fylgt og áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, jákvæðan aga og þemabundin verkefni í lotum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita nemendum með sérþarfir leiðsögn og stuðning
  • Halda utan um og stýra teymi einstakra nemenda í samráði við stjórnendur
  • Vinna að gerð einstaklingsnámskráa í samstarfi við sérkennara og fylgja þeim eftir
  • Mæta þörfum nemenda á heildstæðan og einstaklingsbundinn hátt til að auka félagsfærni, virkni og tilfinningaþroska
  • Að veita faglega ráðgjöf til kennara og stuðningsaðila
  • Aðlaga og hanna námsumhverfi svo það henti fjölbreyttum nemendahópi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi
  • Þekking og reynsla af starfi með börnum með sérþarfir
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
  • Þekking á PEERS og TEACCH er kostur
  • Hreint sakavottorð
Реклама створена 24. April 2026
Кінцевий термін подання заявки7. May 2026
Мовні вимоги
No specific language requirements
Розташування
Brunngata 2, 510 Hólmavík
Тип роботи
Професії
Мітки роботи