
Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli er við Norðurhóla 1 á Selfossi. Hann tók til starfa í ágúst 2004 með 1.- 4. bekk en er nú heildstæður skóli með bekkjardeildir frá 1.- 10. bekk. Sérdeild Suðurlands er deild innan Sunnulækjarskóla og í daglegu tali nefnd Setrið.
Sunnulækjarskóli er skóli sem lærir. Skólinn er samfélag þar sem allir vinna saman að því að læra, þroskast og taka framförum. Við viljum byggja upp sterkt lærdómssamfélag nemenda og starfsmanna og leggjum áherslu á metnaðarfullt skólastarf þar sem virðing og traust ríkir. Góð samvinna starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans er mjög mikilvæg.
Nemendur eru settir í öndvegi og við viljum rækta með þeim áræði, þrek og þor til að takast á við þau fjölmörgu og fjölbreyttu verkefni sem bíða þeirra á lífsleiðinni. Við viljum að nemendum og starfsfólki líði vel í skólanum og gangi glaðir til starfa.
Í Sunnulækjarskóla vinna allir í teymum. Þannig nýtum við styrkleika og margbreytileika hópsins betur og margar hendur vinna létt verk. Umsjónarkennarar innan árgangs mynda kennarateymi sem og faggreinakennarar, list- og verkgreinakennarar, íþróttakennarar og sérkennarar ásamt þroska- og iðjuþjálfum. Kennarateymin framkvæma og stjórna daglegu skólastarfi tiltekinna árganga eða námshópa. Góð teymisvinna er liður í að byggja upp sterkt lærdómssamfélag í skólanum.
Einkunnarorð skólans eru GLEÐI - VINÁTTA - FRELSI.

Yfirþroskaþjálfi
Auglýst er 100% staða yfirþroskaþjálfa frá 1. ágúst 2023
Óskað er eftir þroskaþjálfa í 100% starf frá 1. ágúst. Yfirþroskaþjálfi veitir leiðsögn og ráðgjöf til foreldra, kennara og annarra starfsmanna ásamt því að þjálfa og styðja við nám nemenda er þurfa á sértækum stuðningi að halda.
Menntunar- og hæfniskröfur
Gerð er krafa um háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi til að starfa sem slíkur
Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
Hæfni og áhugi á skólastarfi
Færni í mannlegum samskiptum
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Helstu verkefni og ábyrgð
Þroskaþjálfi vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk skólans og foreldra/forráðamenn nemenda í samráði við deildarstjóra. Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast skólanum í samráði við deildarstjóra
Vinnur að áætlanagerðum, þ.m.t. skólanámskrá, bekkjaráætlunum og einstaklingsáætlunum í samráði/samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á
Gerir færni-, þroska- og námsmat í samráði/samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á
Skipuleggur þjálfunaraðstæður, velur/útbýr þjálfunar- og námsgögn og fylgir eftir settum markmiðum. Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila
Auglýsing birt2. júní 2023
Umsóknarfrestur12. júní 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Norðurhólar 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinnaÞroskaþjálfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Kennari óskast í leikskólann Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg

Dönskukennari óskast til starfa við Árbæjarskóla, afleysing í eitt ár.
Árbæjarskóli

Deildarstjóri frístundastarfs
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Sérkennslustjóri - Leikskólinn Grænaborg
Suðurnesjabær

Starfsmaður á leikskóla, fullt starf
Seltjarnarnesbær

Leikskólakennari/kennari
Seltjarnarnesbær

Viltu koma og starfa með geggjuðum hóp í Austurkór
Austurkór

Kennari í stoðþjónustu
Stykkishólmsbær

Starfsfólk óskast í Leirvogstunguskóla
Leirvogstunguskóli

Umsjónarkennari á yngsta stigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær