Leikskólinn Klambrar
Leikskólinn Klambrar

Yfirþroskaþjálfari

Yfirþroskaþjálfari óskast á leikskólann Klambra í hlutastarf.
Klambrar er 4 deilda leikskóli í hjarta borgarinnar sem staðsettur er við hliðina á Háteigskirkju.
Börnin eru á aldrinum 1 til 6 ára. Leikskólinn Klambrar er Grænfánaskóli þar sem einkunnarorð skólans eru Vinátta - Gleði - Sköpun.
Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu okkar www.klambrar.is

Starfið felur í sér einstaklingsþjálfun og skipulag á stuðning barna með sérþarfir.
Gott er ef að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfari
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Fjölbreytt nálgun í þjálfun og umsjón með nemendum í samvinnu við leikskólakennara.
Vinna að gerð einstaklingsnámskrár og eftirfylgni í samvinnu við kennara.
Áætlanagerð, þjálfun nemenda, vinna með félagsfærni, aðlögun námsefna og námsaðstæðna í samvinnu við leikskólakennara
Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað starfsfólk skólans
Vinna að gerð sjónræns skipulags fyrir nemendur
Fríðindi í starfi
Menningar og sundkort
Auglýsing birt22. nóvember 2021
Umsóknarfrestur26. nóvember 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Háteigsvegur 33, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar