Oak restaurant ehf.
Oak restaurant ehf.

Yfir matreiðslumaður

Vilt þú leiða nýtt eldhústeymi og taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og þróun nýs veitingastaðar?


OAK Restaurant leitar að öflugum og metnaðarfullum yfirmatreiðslumanni til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu veitingastaðar í hjarta Mosfellsbæjar.

Frá opnun í byrjun júni hafa viðtökur verið frábærar og húsið verið meira og minna fullt frá opnunardegi. OAK hefur á stuttum tíma skapað sér sérstöðu með fjölbreyttum matseðli, vönduðu drykkjarúrvali og hlýlegu andrúmslofti þar sem persónuleg þjónusta er í fyrirrúmi.

Við leitum að einstaklingi sem hefur ástríðu fyrir fagmennsku í matargerð, vill hafa áhrif á þróun staðar og byggja upp sterka liðsheild þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa, þróast og ná árangri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða daglegan rekstur eldhússins
  • Bera ábyrgð á gæðum og framsetningu rétta 
  • Þróa og viðhalda skilvirkum verkferlum
  • Taka þátt í vöruþróun og mótun matseðla
  • Þjálfa, leiðbeina og styðja starfsfólk eldhússins
  • Taka þátt í gerð vaktaplana
  • Vinna náið með stjórnendum að áframhaldandi þróun OAK 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í matreiðslu
  • Reynsla af stjórnun á veitingastað
  • Leiðtogahæfni og góð yfirsýn
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Metnaður fyrir gæðum, nýsköpun og faglegum vinnubrögðum 
Auglýsing birt22. júní 2026
Umsóknarfrestur20. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Þverholt 1, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar