Oak restaurant ehf.
Oak restaurant ehf.

Veitingastjóri

Vilt þú leiða nýtt veitingateymi og hafa jákvæð áhrif á upplifun gesta okkar?

OAK Restaurant leitar að öflugum og metnaðarfullum veitingastjóra til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu glænýs veitingastaðar í hjarta Mosfellsbæjar.

Frá opnun í byrjun júni hafa viðtökur farið fram úr væntingum og húsið verið meira og minna fullt frá opnunardegi. OAK hefur á stuttum tíma skapað sér sérstöðu með fjölbreyttum matseðli, vönduðu drykkjarúrvali og hlýlegu andrúmslofti þar sem persónuleg þjónusta er í fyrirrúmi.

Við leitum að leiðtoga sem hefur ástríðu fyrir framúrskarandi þjónustu, nýtur þess að vinna með fólki og vill byggja upp sterka liðsheild þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa, þróast og ná árangri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða og styðja þjónustuteymi OAK í daglegum rekstri
  • Tryggja framúrskarandi þjónustu og jákvæða upplifun gesta
  • Þjálfa og þróa starfsfólk í sal
  • Sinna vöruþróun og mótun vín- og kokteilaseðla
  • Taka þátt í gerð vaktaplana
  • Vinna náið með stjórnendum og eldhúsi að áframhaldandi þróun staðarins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í framreiðslu
  • Reynsla af stjórnun veitingastaða eða teyma innan veitingaþjónustu
  • Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
  • Leiðtogahæfni og góð yfirsýn
  • Metnaður fyrir fagmennsku og gæðum í þjónustu
Auglýsing birt22. júní 2026
Umsóknarfrestur20. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þverholt 1, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar