
Stjórnandi mötuneytis Húnaskóla 100% starf
Starfið felst í stjórnun mötuneytis Húnaskóla sem er mötuneyti grunnskóla og leikskóla Húnabyggðar. Áætlaður fjöldi daglegra gesta er um 350, þar af um 250 börn og tæplega 100 fullorðnir. Fjöldi gesta getur breyst milli ára í takt við íbúaþróun og aðrar breytingar sem gerðar eru á rekstri sveitarfélagsins.
Í góðu samráði og samstarfi við menntastofnanir og skrifstofu sveitarfélagsins spilar mötuneytið lykilhlutverk í þróun og útfærslu lýðheilsustefnu sveitarfélagsins. Lögð er áhersla á að vinna með einfaldan, ferskan og hefðbundin íslenskan mat og matvæli. Lögð er áhersla á að vinna með hráefni úr héraði þegar það er mögulegt.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf við byrjun skólaárs eða sem fyrst í ágúst.
Mannaforráð í mötuneyti
Innkaup og birgðastýring
Ábyrgð á matseðli mötuneytis
Ábyrgð á gæðum mötuneytis
Ábyrgð á faglegum kröfum sem gerðar eru til mötuneytisins
Menntun á sviði matreiðslu og/eða matargerðar
Reynsla af rekstri mötuneyta
Frumkvæði, jákvæðni og sköpunargleði
Stjórnunarreynsla og samskiptahæfileikar eru mikilvægir
Reynsla af innkaupum og birgðastjórnun
Góð íslenskukunnátta
Hreint sakavottorð
Íslenska










