Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Vörustjóri

Hefur þú brennandi áhuga á umbótum, nýsköpun og framþróun?
Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig...

Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að metnaðarfullum vörustjóra í deild vörustýringar hjá stafrænni Reykjavík. Markmið starfsins er að styðja við nýsköpun í upplýsingatæknirekstri, þróun á hugbúnaðarlausnum eða búnaði og fleira sem hægt er að líta á sem fjárfestingu í nýjum kerfum, tækni, nýrri virkni eða framþróun tæknilegra innviða Reykjavíkurborgar. Vörustjóri passar upp á heilsu upplýsingatæknilausna, sér til þess að þær séu fullnýttar hverju sinni, ber ábyrgð á framþróun þeirra og sér um samningsstjórnun þegar það á við. Vörustjórar í deild vörustýringar fara meðal annars með umsjón stærstu upplýsingakerfa Reykjavíkurborgar. Má þar nefna mannauðs- og launalausnir, skjalakerfi Reykjavíkurborgar, Atlassian og M365. Vörustjóri getur mögulega stýrt nokkrum vörum samtímis en fer þó eftir umfangi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sem vörustjóri munt þú ...

  • Greina ólíkar þarfir, skilgreina þær og miðla þeim áfram til viðeigandi aðila
  • Móta, forgangsraða og fylgja eftir verkefnalista vöru
  • Afla og veita upplýsingar til hagaðila og annarra samstarfsaðila
  • Fullvinna og innleiða stafrænar lausnir
  • Hafa umsjón með og fylgja eftir umbóta- og breytingarverkefnum
  • Hafa umsjón með þróun stafrænna lausna
  • Setja fram og fullvinna efni og gögn bæði á tölulegu- og á textaformi
  • Sjá um fjárhagsáætlanagerð og samþykkja reikninga
  • Sjá um samningsstjórnun
  • Taka þátt í að þróa vörustjórnunarferla
  • Taka þátt í samstarfshópum
  • Taka þátt í setningu og eftirfylgni árangursmarkmiða
  • Vera stuðningur við skrifstofustjóra, deildarstjóra og teymisstjóra
  • Verkefnastýra og stjórna verkefnahópum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun kostur  
  • Reynsla og/eða þekking af stafrænni vörustýringu
  • Þekking á verkferlum, verkefnastjórnun o.fl., því tengt
  • Reynsla af áætlanagerð
  • Reynsla af greiningu vandamála
  • Reynsla af stjórnun verkefna
  • Góð tök á töflureiknum og verkefnisstjórnunarhugbúnaði
  • Þekking og/eða reynsla af mannauðslausnum, skjalakerfum, Atlassian eða M365 er kostur
  • Góð tök á ritvinnslu og framsetningu efnis á tölvutæku sniði
  • Áhugi á nýsköpun og stafrænum lausnum
  • Farsæl reynsla af teymisvinnu
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Rík aðlögunarhæfni og lausnamiðuð hugsun
  • Útsjónarsemi og skipulagskunnátta
  • Drifkraftur, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
  • Jákvætt viðhorf til jafnréttis og fjölbreytileika
Fríðindi í starfi

Við bjóðum upp á:

  • Fyrsta flokks vinnustað
  • Niðurgreitt mötuneyti sem býður upp á fjölbreyttan og hollan mat
  • Verkefni sem stuðla að því að einfalda og bæta líf starfsfólks og borgarbúa
  • Krefjandi og skemmtileg verkefni
  • Öfluga nýliðamóttöku
  • Sálrænt öryggi og skapandi menningu
  • Góða liðsheild og góð samskipti
  • Samkennd og virðing
  • Þekkingarumhverfi
  • Fjölbreytta þjálfun og möguleika á þróun í starfi
  • Áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika
  • Heilsueflandi vinnustað
  • Gott vinnuumhverfi
  • 30 daga í sumarleyfi
  • 36 stunda vinnuviku
  • Fyrsta flokks vinnuaðstöðu
  • Heilsu- og samgöngustyrk
  • Sundkort
  • Menningakort
Auglýsing birt15. janúar 2026
Umsóknarfrestur29. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)