
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Viltu gerast stuðningsfjölskylda ?
Þjónustu- og ráðgjafardeild fyrir fatlað fólk í Kópavogi auglýsir eftir einstaklingum/fjölskyldum til að sinna hlutverki stuðningsfjölskyldu fyrir fötluð börn og ungmenni. Hlutverk stuðningsfjölskyldu snýr meðal annars að því að taka barn að sér í skamman tíma með það að markmiði að létta álagi á fjölskyldum og að veita barninu tilbreytingu. Að jafnaði er um að ræða 2 sólarhringa á mánuði.
Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Velferðarsviði Kópavogs þurfa að veita heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.
Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Ósk Alexandersdóttir umsjónarmaður stuðningsþjónustu, [email protected] eða ráðgjafar í Þjónustu- og ráðgjafardeild fyrir fatlað fólk, Kópavogsbæ í síma 441-0000.
Auglýsing birt8. apríl 2021
Umsóknarfrestur20. maí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (8)

Aðstoðarmanneskja óskast á Akureyri
NPA miðstöðin

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í hlutastarf
NPA miðstöðin

NPA aðstoðarkona í fullt starf!
Forréttindi

Hlutastarf í Frístundaklúbbnum Úlfinum
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Komdu til liðs við okkur á Andrastaði – vantar fólk í aukavinnu
Andrastaðir

Starfsmenn óskast í stoðþjónustu við fötluð börn
Akraneskaupstaður

Aðstoðarkonur óskast í NPA-starf á kvöld- og helgarvaktir tímabundið starf til 30 Nóvember
NPA miðstöðin

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær