Grund hjúkrunarheimili
Grund hjúkrunarheimili
Grund hjúkrunarheimili

Vilt þú vera hópstjóri ?

Ert þú sjúkraliði eða félagsliði eða jafnvel enn í námi ?


Við á Grund erum að bæta við þann frábæra mannskap af hópstjórum sem er starfandi við heimilið.
Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt þar sem við leggjum mikla áherslu á góða teymisvinnu. Hjúkrunarfræðingur er alltaf í húsinu til ráðgjafar og stuðnings.

Ýmsir möguleikar eru á starfshlutfalli og vaktafyrirkomulagi.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
  • Reynsla af heilbrigðisstörfum
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Viðeigandi starfsleyfi ef við á.


Greitt er eftir kjarasamningi viðeigandi stéttarfélags og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.


Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi. Grundvöllur fyrir ráðningu hjá hjúkrunarheimilum Grundar er að viðkomandi sé bólusettur.


Nánari upplýsingar um starfið veitir:

Mannauðsdeild Grundarheimilanna

[email protected]



Við hlökkum til að heyra frá þér !

Auglýsing birt6. janúar 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hringbraut 50, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar