Orkustofnun
Orkustofnun
Orkustofnun

Vilt þú taka þátt í mótun sjálfbærrar auðlindanýtingar?

Orkustofnun leitar að framsæknum sérfræðingi á svið sjálfbærrar auðlindanýtingar.

Meginábyrgðarsvið sérfræðingsins lýtur að eftirliti með nýtingu náttúruauðlinda landsins, svo sem vinnslu raforku og nýtingu grunnvatns, jarðhita og jarðefna.

Einnig mun hann sjá um samskipti við leyfishafa, öflun gagna, úrvinnslu talna- og fræðsluefnis ásamt því að veita leiðbeiningar til leyfishafa.

Tilgangur starfsins er að tryggja að hagnýting auðlinda sé í samræmi við viðmið sjálfbærrar þróunar og að aðstoða við mótun á framkvæmd auðlindanýtingar á Íslandi

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Eftirlit með hagnýtingu grunnvatns, yfirborðsvatns, jarðefna, jarðhita og rekstri virkjana í samstarfi við aðra sérfræðinga í teymi auðlindaeftirlits.
  • Öflun og rýni gagna um auðlindanýtingu í samræmi við leyfisveitingar fyrir nýtingu vatns, jarðhita og jarðefna og rekstri virkjana.
  • Þátttaka í mótun stefnu og umgjarðar auðlindanýtingar í þágu þjóðar í samvinnu við stjórnendur og aðra sérfræðinga Orkustofnunar, stjórnvöld, almenning og hagaðila.
  • Alþjóðasamstarf í samhengi sjálfbærrar auðlindanýtingar.
  • Miðlun upplýsinga og þekkingar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á meistarastigi á sviði rafmagnsverkfræði, orkuverkfræði, vélaverkfræði, jarðvísinda, umhverfisfræða, umhverfisverkfræði eða öðrum tengdum greinum sem nýtast í starfi.
  • Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti er skilyrði.
  • Reynsla af stjórnun verkefna og þverfaglegri samvinnu.
  • Hæfni í að setja fram skýr markmið og áætlanir og að ljúka verkefnum.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði, drifkraftur, skilvirkni, jákvæðni og faglegur metnaður.
  • Áhugi á að vinna í og taka þátt í að móta lifandi og metnaðarfullt starfsumhverfi.
  • Áhugi á orku- og umhverfismálum og sjálfbærri auðlindanýtingu í víðu samhengi.
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
Auglýsing birt28. maí 2024
Umsóknarfrestur10. júní 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Grensásvegur 9, 108 Reykjavík
Rangárvellir 150127, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TextagerðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinnsla rannsóknargagnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar