Distica
Distica
Distica

Vilt þú starfa í vörumóttöku Distica?

Distica óskar eftir að ráða til sín liðsfélaga í vörumóttöku félagsins. Um er að ræða gott tækifæri til að starfa hjá traustu fyrirtæki sem sérhæfir sig í innflutningi og dreifingu á vörum fyrir heilbrigðismarkað. Distica rekur fjögur vöruhús sem öll eru staðsett í Garðabæ.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Móttaka á sendingum
  • Móttökuskoðanir
  • Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
  • Þátttaka í umbótastarfi vinnusvæðisins og deildarinnar
  • Önnur tilfallandi störf innan vinnusvæðisins og vöruhúsanna

Ef þú...

  • hefur menntun sem nýtist í starfi og/eða reynslu af sambærilegu starfi.
  • býrð yfir framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • sýnir dugnað í verki, ert stundvís og hefur getu til að starfa í hóp.
  • hefur góða tölvukunnáttu.
  • hefur gott vald á íslensku og ensku.
  • hefur hreint sakavottorð.

... þá gætum við verið að leita af þér!

Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst 2025

Stefna Distica er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika meðal starfsfólks og hvetjum við einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um. Tekið er við umsóknum hér, í gegnum ráðningarvef Distica. Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.

Nánari upplýsingar veitir Viktor Grímur Vilhelmsson í [email protected]

Auglýsing birt6. ágúst 2025
Umsóknarfrestur17. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar