
Símstöðin ehf
Símstöðin ehf er úthringifyrirtæki sem býður einstaklingum/fyrirtækjum vörur og þjónustu til kaups fyrir þriðja aðila. Oft fylgjum við eftir markpósti (bein markaðs-setning) og/eða veitum yfirstandandi auglýsingaherferð aukinn kraft og nauðsynlega eftirfylgni.
Við trúum á að það sé fyrst og fremst árangurinn sem eigi að búa til góðar tekjur fyrir alla aðila. Sameiginlegir hagsmunir Símstöðvarinnar ehf og viðskiptavina þeirra fara því ávallt saman við gerð samstarfssamnings.

Hlutastarf - Eigið vaktaplan
Við hjá Símstöðinni aðstoðum ýmis góðgerðarfélög í úthringiverkefnum til fjáröflunar allt árið um kring. Hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur á öllum aldri og vegna aukinna verkefna viljum við bæta öflugum sölufulltrúum við teymið okkar.
Starfið felst í úthringingum til einstaklinga en málefnin geta verið mörg og mismunandi.
50%-70% starf er í boði fyrir rétta aðila. Greitt er tímakaup og bónusar fyrir góðan árangur. Vaktir eru 4-6 tímar (lágmark tvisvar í viku).
Opnunartímar:
- Mánud-Fimmtud kl. 10:00 - 20:00
- Föstud kl. 10:00 - 15:00
Hæfniskröfur:
- Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði / You need to be fluent in Icelandic
- Lágmarksaldur er 18 ára
Við gerum ekki kröfu um sölureynslu því starfsfólkið okkar fær sérsniðna og góða kennslu áður en það hefur störf.
Við gerum kröfu um hreint sakavottorð
Endilega sendið okkur umsókn eða hafið samband ef þið eruð með einhverjar spurningar.
Auglýsing birt12. maí 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Malarhöfði 2, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniSjálfstæð vinnubrögðSölumennska
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Viltu selja árangur, ekki bara vörur?
HD Iðn- og tækniþjónusta

Sölumaður/skrifstofa dagvinna - framtíðarstarf - Only Icelandic speaking!
ATC

Þjónustumiðja trygginga leitar að liðsauka
Arion banki

Söluráðgjafi Vatn og veitna, Selfossi
Vatn & veitur

Dineout stækkar söluteymið!
Dineout ehf.

Sölu- og þjónusturáðgjafi hjá Nova – Smáralind / þjónustuver
Nova

Tryggingaráðgjafi
Tryggingar og ráðgjöf ehf.

Þjónustufulltrúi
Atlantsolía

Sölufulltrúar óskast í hlutastörf í verslun okkar á Keflavíkurflugvelli.
ICEWEAR

Egilsstaðir: Deildarstjóri verkfæra og festinga
Húsasmiðjan

Útilíf - Sölustarf í verslun
Útilíf ehf.

Sölu- og þjónustufulltrúi AVIS
Avis og Budget