Moss Markaðsstofa
Moss Markaðsstofa
Moss Markaðsstofa

Viðskiptastjóri

MOSS Markaðsstofa leitar að skipulögðum, drífandi og reynslumiklum einstaklingi í stöðu viðskiptastjóra. Starfið felur í sér samskipti við viðskiptavini, ráðgjöf og áætlanagerð. Viðskiptastjóri starfar sem brú á milli viðskiptavina og stofunnar, auk þess að tryggja að markaðsáætlunum sé fylgt eftir.

Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf fyrir einstakling sem er með gott auga fyrir markaðstækifærum, auglýsingum, birtingum og hefur áhuga á að vera í skapandi umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti við viðskiptavini og miðla.
  • Gerð markaðs- og auglýsingaáætlana.
  • Yfirsýn yfir birtingum.
  • Vinna með hugmynda-, og hönnunarteymi að þróun markaðsherferða.
  • Kortleggja markaðstækifæri og viðskiptaöflun.
  • Skipulag, umsjón og eftirfylgni verkefna.
  • Önnur tilfallandi markaðsverkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði markaðsfræði eða viðskiptastjórnunar æskileg.
  • Reynsla af auglýsinga-, viðskipta-, eða markaðsstarfsemi.
  • Þekking og reynsla af Meta Business Suite æskileg.
  • Reynsla af birtingastörfum er kostur, ekki skilyrði.
  • Áhugi og þekking á markaðsmálum.
  • Framúskarandi samskiptahæfni og hæfni til að vinna í teymi.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Jákvætt viðhorf og lausnamiðað hugarfar.
Auglýsing birt17. október 2025
Umsóknarfrestur3. nóvember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar