Olís ehf.
Olís ehf.
Olís ehf.

Verslunarstjóri Olís

Olís óskar eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan einstakling í starf verslunarstjóra á eina af minni stöðvum okkar á Höfuðborgarsvæðinu. Verslunarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri þjónustustöðvarinnar og vinnur með samhentum hópi starfsmanna.


Helstu verkefni:
Verslunarstjóri er daglegur stjórnandi þjónustustöðvar og ber ábyrgð á öllu sem viðkemur daglegum rekstri.
Hann er skipulagður leiðtogi og teymis-maður sem leitast við að öll samskipti á stöðinni séu góð.
Verslunarstjórinn er góð fyrirmynd, jákvæður, heiðarlegur, þjónustulundaður og úrræðagóður.
Verslunarstjóri er til staðar fyrir starfs-fólkið sitt og leysir úr þeim vandamálum sem upp kunna að koma.


Hæfniskröfur:
• Mjög gott vald á íslensku og mikil færni í samskiptum
• Ábyrgð og samviskusemi
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Jákvæðni, dugnaður, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
• Reynsla af verslunarstörfum, stjórnun eða rekstri er æskileg

Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, uppbyggileg samskipti og fagleg vinnubrögð

Umsóknir skilist inn í gegnum vefform

https://workplace.opusfutura.com/Advert/C-dS4SC0cUaNqWqCBdUn1A

Auglýsing birt14. júlí 2025
Umsóknarfrestur25. júlí 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar