

Verkstjóri standsetningu flota / Fleet Turnaround Supervisor
SIXT á Íslandi er ört stækkandi bílaleiga og opnaði nýlega afgreiðslu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Við leitum að öflugum og skipulögðum Verkstjóri standsetningu flota sem leiðir daglegan rekstur bílaþrifa og undirbúnings bílaflotans á Keflavíkurflugvelli. Starfið heyrir beint undir rekstrarstjóra og gegnir lykilhlutverki í að tryggja að bílar SIXT séu ávallt tilbúnir á réttum stað, á réttum tíma og í samræmi við gæðastaðla fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg verkstjórn og skipulag þrifateymis á Keflavíkurflugvelli
- Tryggja að bílar séu tilbúnir til afhendingar á réttum tíma og uppfylli gæðastaðla SIXT
- Skipuleggja vaktir, verkefni og mönnun í samræmi við bókanir og álag
- Samtæma flæði bíla milli þrifasvæðis, bílastæða og afhendingarsvæða
- Þjálfa, leiðbeina og styðja starfsfólk ásamt því að taka þátt í ráðningum nýrra starfsmanna
- Tryggja rekstur þrifasvæðis, halda utan um búnað og birgðir og fylgja öryggis- og gæðakröfum
- Fylgjast með afköstum, gæðum og rekstri og vinna markvisst að umbótum á verkferlum
Hæfniskröfur
- Reynsla af verkstjórn eða stjórnun starfsfólks
- Mjög góð skipulagshæfni og geta til að vinna undir álagi i hröðu starfsumhverfi
- Nákvæmni, metnaður og rík áhersla á gæði
- Leiðtogahæfni og hæfni til samstarfs þvert á deildir
- Góð enskukunnátta er skilyrði; önnur tungumál kostur
- Bílpróf
- Reynsla af bílaleigu, bílaþrifum eða sambærilegum rekstri er kostur en ekki nauðsyn
Um SIXT
SIXT er eitt þekktasta og virtasta vörumerki heims í bílaleigu, með yfir 100 ára sögu og starfsemi í meira en 100 löndum. SIXT skilgreinir sig sem premium bílaleigu – nýlegur og glæsilegur bílafloti, vönduð umgjörð og þjónusta sem fer fram úr væntingum eru kjarninn í öllu sem við gerum. Metnaðurinn er einfaldur: viðskiptavinir eiga ekki bara að vera ánægðir, heldur eiga þeir að fara frá okkur sem aðdáendur.
SIXT á Íslandi er í örum vexti og hér gefst einstakt tækifæri til að vaxa með fyrirtækinu og hafa raunveruleg áhrif á mótun þess. Hjá SIXT starfar samhentur og metnaðarfullur hópur – Team Orange – þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, frumkvæði og að hafa gaman af því sem við gerum. Við treystum fólkinu okkar, gefum því svigrúm til að taka ákvarðanir og fögnum árangri saman.
English
SIXT Iceland is a fast-growing car rental company and recently opened a new service desk at the Keflavik Airport. We are looking for a proactive and well-organised Fleet Turnaround Supervisor to lead the daily operation of our vehicle cleaning and fleet preparation team at Keflavík Airport. Reporting directly to the Operations Manager, this role plays a key part in ensuring that SIXT vehicles are always in the right place, at the right time, and prepared to the company's premium quality standards.
Key Responsibilities
- Lead and supervise the daily operation of the vehicle cleaning and preparation team at Keflavík Airport
- Ensure vehicles are prepared on time and meet SIXT's premium quality standards before every rental
- Plan shifts, assign tasks and organise staffing in line with bookings and operational demand
- Coordinate the flow of vehicles between the cleaning area, airport parking and rental pick-up locations
- Recruit, train, coach and support team members while contributing to the hiring of new employees
- Manage the cleaning operation, equipment and supplies while ensuring compliance with health, safety and quality standards
- Monitor operational performance, quality and efficiency, and continuously improve processes.
Qualifications
- Previous experience in team leadership or staff supervision
- Excellent organisational skills and the ability to perform well in a fast-paced environment
- High attention to detail, strong work ethic and commitment to quality
- Strong leadership skills and the ability to collaborate effectively across departments
- Excellent English is essential; additional languages are an advantage
- Valid driver's licence
- Experience in car rental, vehicle cleaning or similar operational environments is an advantage but not a requirement
About SIXT
SIXT is one of the world's best-known and most respected car rental brands, with over 100 years of history and operations in more than 100 countries. SIXT defines itself as a premium car rental company – a modern, high-quality fleet, a polished environment and service that exceeds expectations are at the core of everything we do. Our ambition is simple: customers should not just be satisfied – they should leave us as fans.
SIXT Iceland is growing fast, offering a unique opportunity to grow with the company and have a real impact on shaping it. At SIXT you will join a united and ambitious team – Team Orange – built on professionalism, initiative and enjoying what we do. We trust our people, give them room to make decisions and celebrate success together.
Ready? Action, Go!
Enska
Íslenska




