

Stöðvarstjóri / Branch Manager
SIXT á Íslandi er ört stækkandi bílaleiga og opnaði nýlega afgreiðslu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Við leitum að öflugum stöðvarstjóra sem leiðir daglegan rekstur afgreiðslunnar í flugstöðinni ásamt skilastöð okkar við flugvöllinn. Stöðvarstjóri heyrir beint undir rekstrarstjóra og vinnur náið með honum að þróun stöðvarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg verkstjórn og skipulag í flugstöð og á skilastöð, þar á meðal vaktaskipulag og mönnun í samræmi við bókanir og álagstíma
- Þjálfun og fræðsla starfsfólks í samræmi við þjónustustaðla SIXT
- Stuðningur og leiðsögn við þjónustufulltrúa í daglegum störfum, sölu og úrlausn mála
- Náið samstarf við flotadeild um stöðu og nýtingu flotans dag frá degi – yfirsýn yfir framboð, bókanir, skil og bíla í þrifum eða viðhaldi
- Þróun stöðvarinnar í samstarfi við rekstrarstjóra – umbætur á verkferlum, þjónustu og afkomu
- Trygging á gæðum og ásýnd stöðvar, bílastæða og bíla samkvæmt stöðlum SIXT
- Daglegir upplýsingafundir með teyminu og eftirfylgni með þjónustumælingum
- Meðhöndlun ábendinga og kvartana viðskiptavina og trygging á góðri þjónustuupplifun á álagstímum
Hæfniskröfur
- Reynsla af úrlausn flókinna verkefna
- Rík þjónustulund og brennandi áhugi á að skapa framúrskarandi upplifun viðskiptavina
- Leiðtogahæfni og hæfni til að byggja upp, þjálfa og hvetja teymi
- Skipulagshæfni, frumkvæði og geta til að halda mörgum boltum á lofti í hröðu umhverfi
- Mjög góð enskukunnátta er skilyrði; önnur tungumál kostur
- Bílpróf
- Reynsla af bílaleigu er kostur en ekki nauðsyn
Um SIXT
SIXT er eitt þekktasta og virtasta vörumerki heims í bílaleigu, með yfir 100 ára sögu og starfsemi í meira en 100 löndum. SIXT skilgreinir sig sem premium bílaleigu – nýlegur og glæsilegur bílafloti, vönduð umgjörð og þjónusta sem fer fram úr væntingum eru kjarninn í öllu sem við gerum. Metnaðurinn er einfaldur: viðskiptavinir eiga ekki bara að vera ánægðir, heldur eiga þeir að fara frá okkur sem aðdáendur.
SIXT á Íslandi er í örum vexti og hér gefst einstakt tækifæri til að vaxa með fyrirtækinu og hafa raunveruleg áhrif á mótun þess. Hjá SIXT starfar samhentur og metnaðarfullur hópur – Team Orange – þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, frumkvæði og að hafa gaman af því sem við gerum. Við treystum fólkinu okkar, gefum því svigrúm til að taka ákvarðanir og fögnum árangri saman.
English
SIXT Iceland is a fast-growing car rental company and recently opened a service desk in the Leifur Eiríksson Air Terminal. We are looking for a driven Branch Manager to lead the daily operation of our terminal desk and return station at the airport. The Branch Manager reports directly to the Operations Manager and works closely with them on developing the branch.
Key responsibilities
- Day-to-day management and organisation of the terminal desk and return station, including shift planning and staffing in line with bookings and peak hours
- Training and coaching of staff in line with SIXT service standards
- Supporting and guiding Rental Sales Agents in their daily work, sales and problem-solving
- Close collaboration with the fleet department on the day-to-day status and utilisation of the fleet – overview of availability, bookings, returns and vehicles in cleaning or maintenance
- Developing the branch together with the Operations Manager – improving processes, service and performance
- Ensuring the quality and appearance of the branch, parking areas and vehicles according to SIXT standards
- Daily team briefings and follow-up on service metrics
- Handling customer feedback and complaints and ensuring a great service experience during peak times
Qualifications
- Experience in solving complex tasks and challenges
- A strong service mindset and genuine passion for creating an outstanding customer experience
- Leadership skills and the ability to build, train and motivate a team
- Well organised, proactive and able to juggle multiple tasks in a fast-paced environment
- Excellent command of English is essential; other languages is advantage
- Driver's licence
- Car rental experience is an advantage but not a requirement
About SIXT
SIXT is one of the world's best-known and most respected car rental brands, with over 100 years of history and operations in more than 100 countries. SIXT defines itself as a premium car rental company – a modern, high-quality fleet, a polished environment and service that exceeds expectations are at the core of everything we do. Our ambition is simple: customers should not just be satisfied – they should leave us as fans.
SIXT Iceland is growing fast, offering a unique opportunity to grow with the company and have a real impact on shaping it. At SIXT you will join a united and ambitious team – Team Orange – built on professionalism, initiative and enjoying what we do. We trust our people, give them room to make decisions and celebrate success together.
Ready? Action, Go!
Enska
Íslenska






