Norðuár bs
Norðuár bs
Norðuár bs

Verkstjóri óskast

Verkstjórn og vinna við móttöku og frágang á sorpi til urðunar. Um er að ræða tímabundna ráðningu vegna afleysinga, 1. september - 31. desember 2022, með góðum möguleika á framtíðarstarfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem er skipulagður og sýnir frumkvæði og sveigjanleika í starfi og hefur snyrtimennsku og virðingu fyrir umhverfinu að leiðarljósi.
Lögð er áhersla á að viðkomandi sé úrræðagóður og stundvís.
Gerð er krafa um vinnuvélaréttindi og almenna tölvukunnáttu ásamt því að viðkomandi geti unnið sjálfstætt.
Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund er skilyrði.
Reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi kostur svo og reynsla af viðhaldi og viðgerðum vinnuvéla.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst almenn umsjón með rekstri urðunarstaðarins, stjórn á starfsmannahaldi móttaka, vigtun og skráning á sorpi til urðunar og skil á upplýsingum um magn og annað sem varðar rekstur staðarins.
Einnig vinna á sorptroðara og öðrum vinnuvélum við frágang í urðunarhólfi. Um er að ræða afleysingastarf en góðar líkur á áframhaldandi starfi að afleysingatíma loknum.
Fríðindi í starfi
Engin sérstök fríðindi
Auglýsing birt8. júní 2022
Umsóknarfrestur28. júní 2022
Laun (á mánuði)600.000 - 800.000 kr.
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Sölvabakki lóð 199565, 541 Blönduós
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StarfsmannahaldPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.VinnuvélaréttindiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar