
HD Iðn- og tækniþjónusta
HD ehf. er eitt öflugasta iðn- og tækni-þjónustufyrirtækið á Íslandi og þjónustar meðal annars orku- og veitufyrirtæki, stóriðju, sjávarútveg og fiskeldi. HD er framsækið og vel rekið fyrirtæki sem sinnir fjölbreyttum og krefjandi verkefnum tengdum viðhaldi á vélbúnaði, stálsmíði og tækniþjónustu.
Hjá HD starfa um 200 manns á 6 starfs-stöðvum fyrirtækisins í Kópavogi, Mosfellsbæ, Akureyri, Straumsvík, Grundartanga og Eskifirði. Fyrirtækið er vel búið tækjum og aðstöðu sem tryggir hámarks fagmennsku og skilvirkni. Okkar markmið er að veita viðskiptavinum faglega og skilvirka þjónustu sem stuðlar að auknu öryggi, áreiðanleika og hagkvæmni í þeirra rekstri.
Við leggjum ríka áherslu á að skapa gott starfsumhverfi þar sem starfsmenn fá tækifæri til að þróast í starfi og vaxa með fyrirtækinu. Við styðjum framtíðar fagmenn með nemastyrkjum og erum opin fyrir hæfu, áhugasömu og metnaðarfullu fólki sem axlar ábyrgð, sýnir frumkvæði og vill taka virkan þátt í framþróun fyrirtækisins. Við veitum starfsmönnum okkar tækifæri til að þróast í krefjandi og spennandi umhverfi.
Við leitum að einstaklingum sem búa yfir góðum samskiptahæfileikum, vinna vel í teymi og hafa metnað til að skila framúrskarandi starfi. Starfsmenn HD njóta meðal annars líkamsræktarstyrks og heits hádegismatar.
Gildin okkar – öryggi, heiðarleiki, þjónustulund og fagmennska – eru okkur að leiðarljósi í öllum daglegum störfum.

Verkstjóri á Húsavík
Við leitum að einstaklingi með sveinspróf í stálsmíði eða vélvirkjun til starfa á Húsavík.
Lögð er áhersla á að ráða hæft, áhugasamt og vel þjálfað fólk sem axlar ábyrgð og sýnir frumkvæði í starfi.
Það er markmið HD að einstaklingar sinni starfinu af áhuga og nýti hæfileika sína til fulls.
Helstu verkefni HD:
- Heildarlausnir fyrir iðnað
- Vélaviðgerðir og vélsmíði
- Vöru- hönnun, þróun og tæknileg aðstoð
- Stálsmíði úr svörtu / ryðfríu stáli og áli
Menntunar og hæfniskröfur:
- Sveinspróf í stálsmíði eða vélvirkjun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Reynslumiklir einstaklingar á sviði stálsmíði og vélaviðgerða koma til greina
- Góð enskukunnátta í ræðu og riti
- Bílpróf
- Vinnuvélaréttindi æskileg
- Hæfni í mannlegum samskiptum og færni til að vinna vel í teymi
- Stundvísi, öguð vinnubrögð og gott skipulag
- Sjálfstæði í starfi og metnaður til að skila góðu starfi
Samkeppnishæf laun í boði.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir: [email protected]
Auglýsing birt7. júní 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
PólskaNauðsyn
LitháískaNauðsyn
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Gránufélagsgata 47, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurRennismíðiSkipulagSmíðarStálsmíðiStálsmíðiVélvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Bifvélavirki - Peugeot
Peugeot á Íslandi | Brimborg

Vélvirki
Nói Síríus

Skoðunarmaður óskast !
Tékkland bifreiðaskoðun

Starfsmaður á vélaverkstæði Akureyri
Vegagerðin

Vélvirkjar/Vélstjórar/ Stálsmiðir-Mechanics/Steelwo.
HD Iðn- og tækniþjónusta

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates

Rekstrarstjóri Tækjaverkstæðis - Keflavíkurflugvöllur
Icelandair

Öflugt viðgerðarfólk á verkstæði Vélafls
Vélafl ehf

Laghentur viðgerðarmaður
Stjörnugrís hf.

Sandblástur, málun og viðgerðir
Tæki.is

Viðgerðarmaður á verkstæði
Tæki.is

Vélvirki, vélstjóri
Stálorka