
Umhverfissvið
Múlaþing er nýtt sveitarfélag á Austurlandi með rúmlega 5000 íbúum.
Undir Umhverfissvið Múlaþings heyra hafnir, slökkvilið, umhverfis-og framkvæmdarmál.

Verkstjórar í vinnuskóla Múlaþings
Sveitarfélagið Múlaþing auglýsir eftir verkstjórum í Vinnuskóla Múlaþings sumarið 2021 á starfstöðvar vinnuskólans á Djúpavogi, Egilsstöðum/Fellabæ og Seyðisfirði.
Verkstjóri stýrir verkefnum sumarstarfsins og þarf að hafa reynslu á þessu sviði, útdeilir verkefnum til flokkstjóra vinnuhópa og þarf að skipuleggja fram í tímann.
Verkstjóri starfar undir stjórn þess sem hefur yfirumsjón með vinnuskólanum og hefur undir sinni stjórn flokkstjóra í vinnuskóla á viðkomandi stað.
Verkstjóri er nemendum fyrirmynd hvað varðar heilbrigðan lífsstíl, stundvísi og tillitssemi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Bílpróf.
Góð færni í samskiptum og hæfni til að stýra hópi af ungu fólki.
Reynsla af, og áhugi á, að vinna með og fræða ungt fólk.
Krafa um frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber daglega ábyrgð og hefur yfirumsjón með starfsemi og nemendum vinnuskóla Múlaþings í viðkomandi bæjarkjarna í samvinnu við yfirmenn.
Vinnur markvisst að því að efla liðsheild og góða líðan starfsfólks og nemenda í vinnuskólanum.
Hefur samskipti við foreldra og forráðafólk nemenda vinnuskóla.
Hefur samskipti við viðeigandi stofnanir og deildir sveitarfélagsins, auk yfirvalda, ef þörf krefur.
Forgangsraðar, samræmir og setur flokkstjórum vinnuskóla fyrir verkefni og tekur þátt í störfum þeirra.
Leiðbeinir flokkstjórum um verklag og aðferðir og hefur eftirlit með að vel og rétt sé unnið. Gætir þess að ávallt liggi skýrt fyrir hvaða verkefnum flokkstjórar eigi að sinna.
Hefur frumkvæði að lausn verkefna á því sviði sem undir hann heyra og hann starfar að.
Staðfestir vinnutíma nemenda og flokkstjóra vinnuskóla og skilar til yfirmanna.
Auglýsing birt16. febrúar 2021
Umsóknarfrestur7. mars 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lyngás 12, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðÖkuréttindiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiTeymisvinnaTóbakslausÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (8)

Framleiðslustarf - Production Worker
Icelandic Glacial

Reykjavík: Meiraprófsbílstjóri á dælubíl - Stífludeild
Íslenska gámafélagið ehf.

Starfsmaður í vöruhúsi - BYKO Fossaleyni
Byko

Rennismiður með reynslu af CNC rennibekkjum og fræsivélum
Héðinn

Umsjónarmaður fasteigna og tækja.
Bónus

Verkamaður - flokkun og vinnsla
Terra hf.

Starf í þrifateymi / Industrial cleaning (with C+E driver´s license)
Nesbú

Sprautumálari og sandblástur // Spray-painter & sandblaster
VHE