Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Verkefnisstjóri doktorsnáms

Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands leitar að verkefnisstjóra í fullt starf innan Nemendaþjónustu sviðsins. Starfið skiptist í 60% umsjón með doktorsnámi og 40% umsjón með öðrum verkefnum innan Nemendaþjónustunnar. Verkefnisstjóri hefur það hlutverk að aðstoða nemendur og kennara sviðsins, hafa umsjón með doktorsnáminu, vinna náið með öðrum verkefnisstjórum og vera í samskiptum við bæði innlenda og erlenda háskóla og stofnanir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón, utanumhald og eftirfylgni með doktorsnámi á sviðinu.
  • Þjónusta, ráðgjöf og upplýsingamiðlun til bæði nemenda og kennara.
  • Umsjón með umsóknum, námsferlum og vörnum doktorsnema.
  • Umsýsla og samskipti við andmælendur vegna doktorsvarna.
  • Þátttaka í þróun verkferla doktorsnáms.
  • Umsjón með nemendatengdum viðburðum í doktorsnámi.
  • Þátttaka í öðrum verkefnum innan Nemendaþjónustunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistarapróf er kostur.
  • Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði.
  • Reynsla og/eða þekking af verkefnastjórnun er kostur.
  • Þjónustulund, afbragðs samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í bæði ræðu og riti.
  • Skipulagsfærni, góð yfirsýn  og frumkvæði í starfi.
Auglýsing stofnuð10. maí 2024
Umsóknarfrestur17. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaFramúrskarandi
Staðsetning
Dunhagi 5, 107 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar