

Verkefnastjóri við Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið
Leitum að verkefnastjóra sem vill taka virkan þátt í þróun, undirbúningi og framkvæmd náms á Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið (HVR). Starfið sameinar verkefnastjórnun, upplýsingagjöf, ráðgjöf og þjónustu og krefst nákvæmni, samskiptahæfni og fagmennsku. Viðkomandi mun vinna náið með skrifstofustjóra, deildarforsetum og öðru starfsfólki í öflugu, þverfaglegu umhverfi.
Um fullt starf er að ræða. Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri HVR og er starfsstöðin á Akureyri.
Starfið felst í miklum samskiptum, samvinnu og þjónustu við stjórnendur, starfsfólk og nemendur sviðsins. Á sviðsskrifstofunni starfa fimm verkefnastjórar en um níutíu starfsmenn vinna við fræðasviðið í akademískum störfum og stoðþjónustu. HVR býður upp á grunn- og framhaldsnám í fjórum deildum, Auðlindadeild, Hjúkrunarfræðideild, Iðjuþjálfunarfræðideild og Viðskiptadeild og eru nemendur um 1400 þetta skólaárið.
- Sinnir verkefnastjórnun, skipulagi og upplýsingagjöf fyrir sviðið til starfsfólks, nemenda og miðlægrar stjórnsýslu háskólans
- Samræmir og bætir verkefni og verkferla þvert á deildir, fræðasvið og stoðeiningar
- Heldur utan um skráningu og úrvinnslu upplýsinga um nám, skipulag náms, kennslu og starfsmannahald
- Vinnur að framkvæmd og tilhögun náms samkvæmt náms-og kennsluskrá deilda og brauta í samstarfi við stjórnendur og annað starfsfólk sviðsskrifstofu
- Vinnur að úrlausn álitamála er varða nám og kennslu í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk á sviðsskrifstofu
- Undirbýr fundi og annast fundarritun í samstarfi við stjórnendur fræðasviðsins
- Meistarapróf sem nýtist í starfi
- Reynsla af skrifstofustörfum og þekking af verkefnastjórnun
- Reynsla af þróun og vinnu með gæða- og verkferla er kostur
- Þekking á háskólaumhverfinu og opinberri stjórnsýslu er kostur
- Góð almenn tölvukunnátta og hæfileiki til að nýta sér þekkingu
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
- Góð samskiptafærni, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð, rík þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
Íslenska
Enska



