
Sveitarfélagið Vogar
Í Sveitarfélaginu Vogum búa um 2.000 manns og er það umkringt fallegri náttúru Reykjanessins auk nálægðar við sjó með skemmtilegum gönguleiðum og fuglalífi. Sveitarfélagið er vel staðsett í nágrenni við þjónustu höfuðborgarsvæðisins og alþjóðaflugvallar en býður upp á kyrrlátt, vinalegt og fjölskylduvænt umhverfi.

Verkefnastjóri þjónustumiðstöðvar
Við hjá Sveitarfélaginu Vogum leitum að faglegum leiðtoga til að stýra fjölbreyttum og krefjandi verkefnum hjá þjónustumiðstöð sveitarfélagsins.
Verkefnastjóri þjónustumiðstöðvar ber ábyrgð á daglegum rekstri, verkstjórn og faglegu utanumhaldi þjónustumiðstöðvar, þ.m.t. verklegum framkvæmdum, viðhaldi, þróun veitustarfsemi og samskiptum við verktaka.
Leitað er að leiðtoga sem gengur í verkin við hlið samstarfsfélaga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á rekstri, samþykkt reikninga og kostnaðareftirlit
- Ábyrgð á daglegri verkefnastjórn verkefna innan þjónustumiðstöðvar
- Sinnir daglegum störfum í þjónustumiðstöð
- Ábyrgð á samskiptum við verktaka
- Eftirlit með framkvæmdum og gæðum
- Aðkoma að samningagerð og útboðsmálum
- Aðkoma að fjárfestinga- og fjárhagsáætlunargerð
- Ábyrgð á átaksverkefnum s.s. innleiðing verkbeiðna og verkeftirlitskerfis
- Að vera leiðtogi og stuðla að öryggi og góðri vinnustaðamenningu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun í iðngrein sem fellur að starfssviði
- Meistararéttindi í iðngrein sem fellur að starfssviði kostur
- Tæknimenntun á háskólastigi eða sambærilegt nám kostur
- Farsæl reynsla af rekstri og stjórnun verkefna
- Þekking á verkferla- og verkbeiðnakerfum kostur
- Reynsla af samskiptum við verktaka kostur
- Skipulögð vinnubrögð og metnaður í starfi
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
- Rík ábyrgðartilfinning og fagmennska
- Góð færni í íslensku og ensku, töluðu og rituðu máli
- Góð almenn tölvufærni
- Ökuréttindi
- Hreint sakarvottorð
- Vinnuvélaréttindi kostur
Auglýsing birt15. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Iðndalur 2, 190 Vogar
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiFagmennskaFrumkvæðiHeiðarleikiMannleg samskiptiTeymisvinnaVerkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (7)

Skrifstofustjóri
Vopnafjarðarhreppur

Verkefnastjóri í fasteignum og viðhaldi
Landsnet hf.

Teymisstjóri launamála hjá Hafnarfjarðarbæ
Hafnarfjarðarbær

Verkefnastjóri bygginga / Byggingastjóri
Íslandshótel

Verkefna- og rekstrarfulltrúi
Rennsli ehf.

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali