Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Verkefnastjóri skjalastjórnunarkerfa

Isavia leitar eftir skipulögðum og sjálfstæðum verkefnastjóra til að halda utan um verkefnavefi á sharepoint og önnur kerfi sem unnið er með í verkefnum. Megin hlutverk verkefnastjóra er að tryggja að samræmi sé á hvernig verkefnavefir eru upp settir og notaðir þvert á verkefni. Verkefnastjóri sér um aðgangsstýringu og ber ábyrgð á að sniðmát sé eins í öllum verkefnum. Verkefnastjóri hefur einnig hlutverk í þróun á ferlum, skipulagi og aðferðum við skjalastýringu og kemur að því að þróa hvernig einingin starfar bæði innan einingarinnar, með öðrum einingum Isavia og utanaðkomandi aðilum.

Flugvallarþróun og uppbygging er eining sem tilheyrir Viðskipta-og þróunarsviði Isavia og annast uppbyggingu á innviðum og tæknibúnaði á Keflavíkurflugvelli. Einingin skiptist í þróunardeild, verkfræðideild og framkvæmdadeild og er verkefnadrifin.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi.
Góð reynsla og þekking á að vinna í Sharepoint er nauðsynleg
Reynsla af skjalastjórnun
Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
Góð samskiptahæfni
Góð íslensku-og enskukunnátta í ræðu og riti
Helstu verkefni og ábyrgð
Sjá um þróun á útliti og notkun á verkefnavefum í samvinnu við verkefnastjóra og ráðgjafa Isavia í Sharepoint
Stuðningur og ráðgjöf til verkefnastjóra í skjalastýringu ásamt að halda utan um verkefnavefi og aðgangstýringu
Vinna að samræmdri skjalastýringu með hönnuðum, verktökum og öðrum hagaðilum í verkefnum
Vinna, þróa og halda utan um ferla, eyðublöð, handbækur og önnur gögn
Þátttaka í verkefnum sem unnin eru þvert á svið Isavia og snúa að því að bæta starfsemi Isavia
Auglýsing birt3. janúar 2022
Umsóknarfrestur16. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.SharePointPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar