Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið

Verkefnastjóri garða og gróðurs

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar leitar að drífandi einstaklingi með brennandi áhuga á gróðri og grænum svæðum í starf verkefnastjóra garða og gróðurs. Markmið starfsins er að stuðla að heilsusamlegum og aðlaðandi grænum svæðum í borginni, vernda náttúru og efla líffræðilegan fjölbreytileika í samræmi við stefnu Reykjavíkurborgar.

Skrifstofa umhverfisgæða undirbýr stefnumótun, forathuganir og greiningar sem lúta að gróðri, görðum, leiksvæðum og náttúru og vinnur náið með öðrum deildum borgarinnar og ytri samstarfsaðilum að mótun og framkvæmd stefnu í borgarumhverfinu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mótun og eftirfylgni stefnu um gróður, græn svæði og líffræðilegan fjölbreytileika í borginni.
  • Stjórnun og samhæfing verkefna sem lúta að undirbúningi, hönnun og þróun grænna svæða.
  • Ráðgjöf, greiningar og umsagnir til annarra deilda borgarinnar, kjörinna fulltrúa og annarra hagaðila í málefnum gróðurs og náttúruverndar.
  • Þverfagleg samvinna og þátttaka í starfshópum innan borgarinnar og með ytri samstarfsaðilum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í landslagsarkitektúr, skipulagsfræðum, land- eða náttúrufræði, umhverfisfræðum eða sambærileg menntun.
  • Framhaldsmenntun á háskólastigi tengd málaflokki eða a.m.k. þriggja ára starfsreynsla.
  • Frumkvæði og ástríða til að leiða málaflokkinn.
  • Samskiptahæfni sem miðar að því að starfa í hóp og verkefnateymum.
  • Reynsla af opinberri stjórnsýslu kostur.
  • Hæfni til framsetningar og greiningar á flóknum gögnum og miðlun upplýsinga.
  • Íslenskukunnátta B2-C1 og enskukunnátta B1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma .
  • Góð almenn tölvukunnátta og þekking á algengum skrifstofuforritum.
Auglýsing birt20. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GarðyrkjaPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar